Ég er nú alveg sæmilega að mér um bókmenntir og listir, ljóðagerð ýmissa tíma, en mér sjálfri finnst skemmtilegast að teikna myndir með orðum; gera nútímaljóð - ef svo má að orði komast. Þótt að mér finnist mjög gaman að lesa gömul ljóð þá hef ég það ekki í mér að fyrna málið og herma eftir stíl fyrri stórskálda, mér finnst miklu meira virði að fólk geti skapað sinn eiginn stíl og það sem meira er; komið tilfinningum sínum á blað.