Svona byrjaði dagurinn hjá mér. Ykkur er velkomið að bæta við þennan bút, ykkar sýn á þennan morgunn. Búa til samsett ljóð, skiptir engu hvernig stíl þið notið :)



Læðist þokan yfir húsið
loftnet reynir hana að fanga
togar létt í þakskeggið
strýkur um bárujárnsklædda vanga.

Læðist með veggjum
léttklædd íslensk vofa
klárar úr dagsins dreggjum
svo heim vímunni úr sofa.

Læðist eftir malbikinu
gulur dreki lítt fleygur
kem mér fyrir í einu sætinu
lítt vaknaður, líkami eða hugur.
—–