Ástin mín…
…….Í faðmi þínum,
lúri í handarkrikanum
Finn ilminn úr hálskotinu,
bringuhárin kitla mig í nefið.
Finn hjartað þitt slá,
við brjóst mitt.
Styrk hönd þín,
á mitti mínu.
Nakinn fótur minn yfir þínum
andardráttur þinn í hári mínu.
Ástfangin í faðmlögum..
…inn í draumalandið.