Málið með flestar (ef ekki allar) bardaga/sjálfsvarnalistir er að þær eru svo miklu meira en bara ‘íþrótt’. Það er heilmikil heimspeki á bak við allar hreyfingarnar og maður er ekki að gera eitthvað út í bláinn. Það er tilgangur á bak við allt. Bardagalist er líka svo miklu fjölbreyttari en íþrótt getur nokkurn tímann verið. Íþróttir hafa bara eitt markmið. Þetta markmið getur verið mismunandi eftir íþrótt, t.d. að koma bolta í net, skora stig, hlaupa/stökkva/kasta lengst. Bardagalistir hafa...