Eitt er óskiljanlegt í þessu máli. Ferrari hefði fengið 16 stig hvort sem Barrichello eða Schumacher hefðu unnið. Þeir græða nákvæmlega ekkert á þessu útfrá heimsmeistarakeppni liða. Schumacher er sá eini sem græðir á þessu.
Kannski er þetta smá misskilningur. Ég tek eftir að þú segir væn(g)stýfður. Fuglarnir eru náttúrulega ekki vængstýfðir heldur eru bara flugfjaðrirnar klipptar. Þessar fjaðrir vaxa svo út aftur þegar fuglinn hefur fjaðurskipti (1x á ári fyrir dísur).
Hver samþykkti þessa grein eiginlega? Ekkert nema upptalning á nöfnum. Takk samt fyrir að pósta þessu. Þetta er ekki smá fyndið. Ég vil hundlaga kettling! Ha ha ha
Ég er ekki alveg sammála þér í því að námsefnið festist síður á svo skömmum tíma. Þvert á móti held ég að það festist frekar í minni þar sem þú getur einbeitt þér að faginu í stað þess að gefa því bara lágmarkstíma í einu. Þannig pælirðu virkilega í efninu í stað þess að hugsa bara um að ná að skila heimadæmum. Eftir heimadæmaskil þá pælirðu ekkert meira í efninu og meðan að þú varst að gera dæmin eyddirðu sem minnstum tíma í pælingar af því að þú þarft kannski að gera hd eða verkefni í 4...
Ég sá þessa mynd í fyrsta skipti núna um helgina og verð að segja að hún kom mér verulega á óvart. Hún var mun betri en ég hafði búist við (kannski hafði ég bara ekki búist við miklu?). Það sem mér fannst best við myndina var að það var ekki verið að troða hávaða og lætum út um allt. Það var ekki verið að reyna að búa til spennu heldur fékk myndin að líða á sínum forsendum. T.d. stelur David löggufarartæki. Þá upphefst ekki einhver hundleiðinlegur eltingaleikur eins og er landlægur í flestum...
Þetta væri alveg rétt hjá þér ef þú myndir muna eftir einu atriði. Það gildir bara í þeirra náttúrulega umhverfi í Ástralíu. Á Íslandi eiga fuglarnir (dísurnar) ekki nokkra möguleika á að lifa í náttúrunni. Þess vegna eykur það ferðafrelsi þeirra að vera með klipptar fjaðrir. Fuglarnir geta þá ferðast um allt herbergið í stað þess að þurfa að vera lokaðir í búri allan daginn.
Skemmtilegast (í réttri röð) CSI - lang/lang/lang skemmtilegast Malcom in the Middle The Monarch of the Glen Leiðinlegast (í réttri röð) Everybody Loves Raymond (ekki ég, leiðinlegustu þættir ever) Íslendingar Mótor Get því miður ekki komið með fleiri af því að ég er ekki með stöð 2 og horfi lítið á sjónvarp.
Hvað er að? Voðalega ertu viðkvæmur! Það er amk ekki smá-viðbrögð sem þú sýnir. Er mikið verið að bögga þig útaf grænmetisátinu? Ég er ekki sammála því að grænmetisætur séu meiri dýravinir en aðrir. Sú fullyrðing er út í hött. Mér er alveg sama þó að þú sért ekki sömu skoðunar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..