Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Iceland Express

í Ferðalög fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef þú ert fylgjandi því að halda verðunum lágum þá verður þú að stuðla að því að halda IE inni á markaðnum með því að versla við þá þegar þú getur, alla vega ef þeir eru ekki mun dýrari en Flugleiðir. Þetta IE verð uppá 34 þús. er athyglisvert því fyrir nokkrum árum þegar ég var að fara til London, þá var þetta sumartilboð Flugleiða, reyndar 35 þús. og var lægsta verðið þeirra. Síðan þegar GO byrjaði að fljúga, þá var allt í einu svigrúm til að lækka enn meira. Þá hugsar nú fólkið að það...

Re: Fjármál unga fólksins...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þú getur fengið bætur ef þú vannst 10 vikur eða meira s.l. sumar og þá bara mjög lítið, kannski 25% bætur sem eru líklega innan við 20 þús. kall á mánuði. Ef þú ert sannanlega hættur í skóla eða útskrifaður myndu bætast 13 vikur við og þá værir þú líklega með 40-50 þúsund. Svo telur líka ef þú hefur unnið með skólanum yfir veturinn.

Re: Er Ríkissaksóknari Herstöðvarandstæðingur ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Milliríkjadeilu hvað? Þetta er nú ekki svo alvarlegt. Kaninn hefur áður farið fram á að fá menn framselda og ekki verið farið eftir því og allt í lagi með það. Hins vegar var þetta flipp hjá Utanríkisráðuneytinu að lofa því að maðurinn yrði framseldur án þess að ræða það við saksóknara og greinilega sleikjuskapur við Kanann af hálfu ráðuneytisins. Kaninn fær þarna misvísandi upplýsingar þar sem einn segir að þeir fái manninn en annar að þeir fái hann ekki og þeir vilja náttúrulega fá hann...

Re: Fjármál unga fólksins...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nemendur og aðrir eiga rétt á bótum ef þeir hafa unnið fullt starf í a.m.k. 10 vikur á síðustu 12 mánuðum. Fyrir það fá þeir lágmarksbætur eða 25% en þeir sem hafa verið í fullu starfi síðustu 12 mánuði fá fullar bætur. Þeir sem hafa verið í skóla 6 mánuði eða lengur af síðustu 12 og eru útskrifaðir eða hættir, þá reiknast þeim 13 vikur í viðbót til bótaréttar. Líka er hægt að geyma bótarétt í 2 ár þannig að ef þú hefur verið í fullu starfi í ár eða meira en hætt og farið í skóla, þá geturðu...

Re: Farsímar - Neysluvara!

í Farsímar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sumt fólk er bara þannig gert að það verður alltaf að eiga nýjustu græjur og ef það veitir því hamingju að eyða tugum þúsunda í síma, þá segi ég bara verði því að góðu. Ég átti sjálfur Panasonic síma þegar ég bjó á Íslandi og reyndist hann ágætlega. Ég frétti að hann hefði dáið um ári eftir að ég flutti út, þá 4 ára gamall. Núna á ég einhvern ódýran Motorola sem ég fékk á 5 þús. kall með árssamning við djöfulinn (lesist Bell Mobility). Ég er búinn að týna honum einu sinni og lá hann þá úti...

Re: Þetta er algjör skandall!!!!

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þeir hljóta að hafa getað séð það á skilaboðum eða póstum sem hafa farið fram og til baka hvort þú ofsóttir hann eða ekki. Hvernig virkar ekki síðan þín?

Re: Þetta er algjör skandall!!!!

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Skrifaðu vandaðar greinar með góðu málfari og stafsetningu, útpældar og hæfilega langar og ekki copy/paste og í tengslum við það áhugamál sem þú sendir þær á og þá verða þær birtar. Gerðu vandaðar kannanir sem eru í tengslum við það áhugamál sem þú sendir á og ekki eitthvað sem er nýbúið að koma og þá kemur hún inn þó reyndar sé löng biðröð kannanna sem bíður eftir að komast inn á sumum áhugamálum. Í sambandi við ný áhugamál, þá getur Hugi ekki bætt inn nýju áhugamáli alltaf þegar einhverjum...

Re: Það voru tveir ræflar sem réðust á mig einan!

í Djammið fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þú gætir þurft að fara í aðgerð á nefinu til að laga þetta. Ég þekki 2 stráka sem eru með hálfstífluð nef eftir nefbrot og annar þeirra sagði að það væri ekkert rosa mál að laga það. Ég veit reyndar ekki af hverju hann var ekki búinn að því.

Re: Hnífstungu málið 1 Juní

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þar sem ég bý í Kanada þá fær maður Ameríska sjónvarpið beint í æð og þegar ég kem heim úr vinnunni rúmlega 4, þá eru þættir eins og Judge Judy og Judge Joe Brown í imbanum. Maður getur alveg hlegið sig máttlausan yfir þessu liði. Judge Judy er alveg sérstaklega vond við fólk sem kemur til hennar og skammar það í hakk fyrir heimsku. Vissulega getur fólk kært fyrir allt en það er ekki þar með sagt að það vinni málið.

Re:

í Fræga fólkið fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hún hefur bara verið að redda smá athygli fyrir nýju plötuna :)

Re: Hnífstungu málið 1 Juní

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Málið er ekki hvort hann geti fengið skaðabætur heldur hversu miklar. Við vitum að skaðabætur á Íslandi eru yfirleitt frekar lágar miðað við Bandaríkin og ef þetta fer fyrir herrétt er spurning hvort hann gæti fengið hærri betur en íslenskir dómstólar myndu dæma honum.

Re: Fjármál unga fólksins...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Visa getur verið eitur fyrir þá sem hafa ekki sjálfstjórn en annars getur það verið mjög þægilegt, t.d. til að panta af netinu og á ferðalögum til að bóka ferðir og gistingu og erlendis til að þú þurfir ekki að spá í gjaldeyri. Það er heldur ekkert sérlega dýrt að hafa visa. Almennt kort er með 2500 kr. á mánuði árgjaldi og ef þú notar ekki raðgreiðslur, þá borgar þú ekki vexti.

Re: Veiðileyfi á ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Og voru kettir þá ekki til á Íslandi eða?

Re: Kisuást

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þar fyrir utan, þá er ekkert endilega sami fressinn sem á alla kettlingana því þær geta verið með mörgum og hver kettlingur getur þess vegna átt mismunandi pabba. Ég hef heyrt að það sé til að tryggja að einhver af kettlingunum komist á legg ef einn fressinn skyldi vera eitthvað gallaður.

Re: Varnarsamningur í skiptum fyrir glæpamann

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég held það skipti nú frekar litlu máli hvort hann sé dæmdur á Íslandi eða fari fyrir herrétt. Líklega mun herréttur dæma hann harðar ef eitthvað er. Eina sem ég var að heyra að ef hann fer fyrir herrétt þá getur fórnarlambið heimtað hærri skaðabætur því Kanarnir eru öllu gjafmildari á bætur heldur en íslenskir dómstólar.

Re: Lífskjör og möguleikar kvenna

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Skýrslan er á <a href="http://www.undp.org/hdr2003/">http://www.undp.org/hdr2003/</a> og listinn á <a href="http://65.109.106.110/hdr2003/pdf/hdr03_HDI.pdf">http://65.109.106.110/hdr2003/pdf/hdr03_HDI.pdf</a> Ísland er númer 1 í “gender empowerment measure” og það er kafli 23 á bls. 78 í listanum.

Re: Afborgun á höfuðstól

í Fjármál og viðskipti fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér hefði bara ekki dottið í hug að fólk vissi þetta ekki. Ég hef einmitt alltaf borgað upp lán á undan áætlun. Hins vegar fyrir þá sem eru miklir skuldarar og eru með fleiri lán og meiri afborganir á mánuði en þeir ráða með góðu móti við, þá er alltaf hægt að labba sig í banka og fá að skuldbreyta, slá saman lánum og lengja tímann. Það er ódýrara til lengdar en að vera að borga vanskilavexti. Svo verða bankarnir líka voða glaðir þegar fólk sýnir lit og vill semja frekar en að vera eitthvað...

Re: gistihús í London

í Ferðalög fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jú, þú getur leitað á <a href="http://www.isiccard.com/discounts/search/default.asp">http://www.isiccard.com/discounts/search/default.asp</a> en það má vel vera að ef þú leitar á expedia og finnur einhver góð tilboð það þá gildi ekki ISIC afsláttur ofan á það en samt geta slík tilboð verið ódýrari en að borga fullt verð annars staðar og fá afsláttinn. Samt allt í lagi að tékka.

Re: Skaðabótamál

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Samkvæmt fjölmiðlum er hann að biðja um 3 millur en það er ekkert víst að hann fái það. Eiginlega finnst mér það frekar ólíklegt því skaðabætur eru yfirleitt frekar lágar hér á landi. Hann fær kannski svona hálfa. Mesta lagi eina.

Re: Hvernig í ósköpunum....

í The Sims fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hún þarf að vera nógu löng og ekki copy-paste og ekki eitthvað sem er nýbúið að koma áður. Það eru sérstaklega stuttar greinar sem eru fluttar á korka.

Re: Hjálp

í Heilsa fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hættu að éta fitu og sykur, drekktu mikið vatn og éttu grænmeti og farðu út að hlaupa. Þannig losnar þú við þá fitu af líkamanum sem myndar þessi “brjóst” og líka það sem felur sixpackinn :)

Re: Hvort er verra, að reykja eða að vera feitur...

í Heilsa fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það fer líklega eftir því hvað þú reykir mikið eða hversu feitur þú ert. Hins vegar er ekkert mjög slæmt að vera feitur ef þú ert í góðu formi. Skv. doktor.is ætti einhver sem er 170 cm að vera milli 54 og 76 kg.

Re: gistihús í London

í Ferðalög fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Eru farfuglaheimili bæli? Ef þér finnst ekki, þá skaltu fá lista hjá farfuglaheimilinu í Laugardal yfir farfuglaheimili í London og nágrenni. Ef þú gerist félagi er ódýrara að gista og sum leyfa þér held ég ekki að gista nema þú sért félagi. Þú getur sums staðar pantað fyrirfram og annars staðar bara droppað inn. Fyrir utan það þá eru alltaf svona skítsæmileg ekkert mjög dýr hótel eins og Holiday Inn eða eitthvað svoleiðis. Svo er leitarvél fyrir hótel er á <a...

Re: Veiðleifi á ketti

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Gallinn við að hafa ketti og hunda lausa innan borgarinnar er umferðin. Nú notum við bíla til að komast á milli staða og hundar og kettir kunna afskaplega illa að passa sig á þeim. Þessir vinir okkar geta því slasast eða dáið þegar keyrt er yfir þá en þeir geta líka valdið slysum, t.d. ef dýr hleypur út á götuna og bílstjóranum bregður, kannski snarhemlar eða beygir frá með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þessi dýr eru gæludýrin okkar. Það erum við sem komum með þau inn í borgina og við erum...

Re: Það voru tveir ræflar sem réðust á mig einan!

í Djammið fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Fáðu áverkavottorð og taktu fullt af myndum af áverkunum. Ef þú þarft að borga eitthvað, þá skaltu spara allar kvittanir og líka vinnutap sem þú lendir í og svoleiðis til að leggja fram í rétti til að láta þá borga. Vonandi færðu feitar skaðabætur og þeir dóm þó eins og kerfið er þá efast maður um að það verði einhver dómur að ráði.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok