Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Börn og hundar

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég las þessa grein á hvuttar og sá ekki betur en að Kristjana þessi hefði látið hann annað, svo fór hann til hennar aftur og þá loks á heimilið þar sem hann beit barnið.

Re: Minkurinn

í Gæludýr fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Pabbi ólst upp þar sem voru hænur og hann sagði að ef refur kemur í hænsahúsið, þá drepur hann til að éta kannski 1-2 hænur og fer svo en minkurinn drepur þær allar og raðar þeim upp, étur svo samt bara kannski eina. Annars er fólk hér í N-Ameríku mikið með frettur (http://www.ferrets-ferrets.com/) sem gæludýr og ku þær vera eitthvað svipaðar köttum en mér finnst þær alltaf frekar óhuggulegar því mér finnst þær líta alveg út eins og minkar.

Re: Fjármál unga fólksins...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvernig vil ég koma í veg fyrir að fátækt fólk mennti sig? Ég hef bara bent á það að ekkert stoppar fátækt fólk í að mennta sig í dag. Það þarf bara að leggja aðeins meira á sig. Það þarf heldur ekkert að vinna 24/7. Það getur líka unnið hlutastarf og lifað ódýrt eða unnið fulla vinnu og tekið ekki fullt nám en á lengri tíma. Annars var bróðir minn í fullri vinnu með fullu námi og sagði að það væri ekkert mál. Finnst þér virkilega ekki að menntun sé þessi virði að leggja neitt á þig fyrir...

Re: Fjármál unga fólksins...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Skólar eru allt að því ókeypis því þú getur varla kallað það einhverja fyrirstöðu að fólk hætti við að fara í nám að þurfa að borga einhverja þúsundkalla í innritunargjald og bækur. Flestar bækurnar getur maður líka keypt notaðar og selt aftur. Mér finnst þetta bara fínt kerfi eins og það er núna. Ef þú ætlar að gera skóla alveg ókeypis og bækur væntanlega fríar líka og fólk á náttúrulega að fá vasapening líka til að geta stundað nám, er það ekki, hver á þá að borga það? Því meira sem þú...

Re: Vottar Jehóva

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þú átt aldrei að taka við bækling frá þeim nema gala inní húsið “Hey, vantar okkur ekki klósetpappír” fyrst.

Re: Vottar Jehóva

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta virkaði alla vega.

Re: Fjármál unga fólksins...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Vilt þú ekki þurfa að leggja neitt á þig fyrir menntun? Ég þekki fólk sem hefur gert þetta, unnið á nóttunni og verið í skóla á daginn, farið á sjóinn til að safna fyrir næstu önn, unnið fulla vinnu með fullu námi í öldungadeild. Þetta var bara það sem þetta fólk var tilbúið að leggja á sig til að fá þessa menntun. Náttúrulega enginn sem píndi það til þess. Það hefði alveg geta látið sér nægja að vinna fulla vinnu án menntunar. Þú værir heldur ekki að vinna eins og þræll heldur værir þú að...

Re: Fjármál unga fólksins...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Neibb því okkur vantar meira ómenntað fólk til að vinna í fiski og byggingavinnu ;)

Re: Vilja konur Testesterón ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef konur tækju testosterón þá myndu þær ekki vera konur lengur. Þær myndu upplifa mjög svipaða hluti og drengir þegar hormónið fer að virka. Fara í mútur, vaxa skegg og líkamshár. Þetta má sjá á þeim konum sem hafa tekið stera. Ég var t.d. að horfa á þátt á BBC fyrir ca. 2 árum. Kom inní miðjan þátt og sá karlmann í myndinni segja að “fólk lítur ekki á mig sem konu” og ég hugsaði með mér að það væri nú ekkert skrítið þar sem þetta var greinilega karlmaður, röddin, skeggbroddarnir á hökunni,...

Re: hjálp!!

í Hundar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Haltu honum bara. Þú getur t.d. látið hann leggjast og sest yfir hann með hnén sitt hvoru megin þannig að hann komist ekki í burtu og þá hefurðu hendurnar lausar til að láta hann fá dropana.

Re: Fjármál unga fólksins...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nákvæmlega. Ef foreldrar þínir geta ekki haldið þér uppi meðan þú klárar menntó (þú getur fengið meðlag til 20 ára ef þú ert í skóla) þá verður þú bara að vinna með skólanum eða þá vinna fulla vinnu og taka frí eina og eina önn til að fara í skóla eða vinna fulla vinnu og taka skólann með. Ef þú gætir t.d. fengið vinnu sem næturvörður, þá væri það kjörið því þú gætir lært meðan þú vinnur, farið í skólann á morgnana og sofið á kvöldin en þú ættir náttúrulega ekkert félagslíf. Hins vegar segir...

Re: díses...

í Skóli fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ári yngri skiptir engu máli enda er líka árs aldursmunur innan bekkjarins og krakkarnir þurfa ekkert endilega að vita að hún sé ári á undan.

Re: Börn og hundar

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mamma mín var bitin af hundi þegar hún var lítil og hún sagði mér alltaf að koma ekki nálægt ókunnugum hundum. Hins vegar þar sem það eru fáir krakkar sem fá þetta uppeldi þá þarf fólk sem á hunda líka að passa þá fyrir ágangi krakka.

Re: Kisuást

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Dýralæknirinn minn vildi taka mína úr sambandi þegar hún var kettlingafull (fóstureyðing) en hann hélt að hún væri komin styttra því hún var bara með einn kettling. Hún lék hins vegar á hann og átti kettlinginn nokkrum dögum áður en dagssetningin var á aðgerðinni en hins vegar lifði greyið ekki nema 2 vikur. Hún varð svo eiginlega strax breima eftir að hann dó þannig að ég flýtti mér að láta kippa henni úr sambandi því ég vildi ekki búa við þetta mjálm :)

Re: Fjármál unga fólksins...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nei, auðvitað getur þú ekki verið á atvinnuleysisbótum meðan þú ert í námi. Það segir sig sjálft þar sem atvinnuleysisbætur eru ætlaðar þeim sem eru atvinnulausir. Námsmenn velja það sjálfir að fara í nám og eru því ekki atvinnulausir.

Re: Rykmaurar

í Gæludýr fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er líka hægt að setja sængina í poka og í frystinn eða bara viðra vel úti á frostköldum degi. Það eru líka til ryksugur, alla vega í N-Ameríku sem nota síu til að þær hleypi ekki aftur út í loftið rykmaurum, frjókornum og öðrum ofnæmisvöldum. Annars eiga foreldrar mínir svona ryksugu sem notar vatn og heitir hún dolphin ef ég man rétt en hún var dýr. Þau eru hins vegar mjög ánægð með hana. Ég kom einu sinni á heimili þar sem barn var með rykofnæmi og það var mjög kósý hjá þeim en samt...

Re: Undirskrift við lóun

í Gæludýr fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Af hverju heitir það hótunarbréf? Hverjum er verið að hóta? Svo er það líka kallað að lóga dýrum en ekki lóa. Lóa er fugl eða getur líka verið kona. Svo verður þú að skilgreina nánar hvað þú meinar með “svona oft”. Hverju dýri er jú bara lógað einu sinni. Svo verður þú líka að skilgreina hvaða aðstæður má lóga dýrum við. Þetta gæti t.d. heitið “Undirskriftasöfnun fyrir því að banna að dýrum verði lógað nema þau séu veik eða slösuð”. Þú verður líka að segja hvaða dýr vegna þess að nú má...

Re: díses...

í Skóli fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það þarf ekkert að vera neitt einelti. Tala nú um ef hún er í sama skólanum og krakkarnir þekkja hana. Ef hún er látin í réttan bekk er líklegt að henni leiðist svo mikið að hún fái skólaleiða. Hún þarf náttúrulega helst líka að eiga vini á sínum aldri ef þetta á að ganga en ég hugsa frekar að krakkarnir verði góðir við hana og passi uppá hana. Krakkar hrekkja þá sem eru ári yngri en alla vega þegar ég var í skóla, þá þótti það lúalegt að hrekkja krakka sem voru mikið yngri og litið niður á...

Re: Vottar Jehóva

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það eru nokkur ráð til að losna við þá, þar á meðal koma nakinn til dyra. Ég heyrði líka um einn sem sagði við þá að afsaka að hann hefði ekki tíma til að tala við þá þar sem hann væri búinn að kveikja á kertunum í fimmhyrninginn og geitinni nýfórnað og blóðið úr henni myndi þorna ef hann notaði það ekki strax. Það vildi svo til að hann var að mála heima hjá sér og var með rauðar slettur á buxunum og hann vissi ekki til fyrr en þeir voru byrjaðir með bænasamkomu í garðinum hjá honum þannig...

Re: Fjármál unga fólksins...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Já en frekar litlar. Kannski um 20 þús. á mánuði.

Re: Fjármál unga fólksins...

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Eins og þetta virkar þá er það full vinna í 10 vikur til að fá lágmarksbætur EÐA hlutastarf í lengri tíma, t.d. er 50% starf í 20 vikur sama og 100% starf í 10 eða þannig. Þetta var alltaf byggt á tímafjölda og þá þurfti maður 425 tíma fyrir lágmarkið og 1700 til að fá fullar bætur en þeir virðast hafa breytt því einhvern tímann og núna finnst mér þetta orðalag í rauninni óljósara.

Re: Skrytid

í Tilveran fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvað gerði hann eiginlega? Ertu búinn að berja hann?

Re: Afhverju félagshyggja?

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta hljómar svo sem ágætlega en hvað gerum við ef gjafafé er ekki nóg til að sjá fyrir öllum aumingjunum? Látum þá bara svelta? Annars held ég að það séu margir sem gefa til góðgerðamála án þess að spá nokkurn tímann í bókhaldi þeirra samtaka sem þeir eru að gefa til nema kannski helst ef það kemur upp einhver stór skandall.

Re: Þið sem eigið fleiri en eitt barn.

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér hefur þótt það athyglisvert að fylgjast með börnum systur minnar því hún á 6 stykki og á einhvern furðulegan hátt hefur skapgerð þeirra endurtekið sig. Elsta barnið hlýddi engu, þrjóskan í hámarki, illileg reiðiköst sem svo voru gleymd eftir hálftíma og eltust reyndar af en ef eitthvað var bannað þá varð að gera það strax, helst svo allir sæju. Fjórða barnið er nákvæmlega eins. Næstelsta barnið tók ekki reiðiköst heldur fýluköst af og til, lá kannski grenjandi undir rúmi hálfan daginn en...

Re: ái

í Heilsa fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvað kom fyrir hinn gaurinn? Annars þá var bróðir minn einu sinni að labba fyrir horn og þá hjólaði strákur á hann. Strákurinn datt en bróðir minn stóð bara þarna voða hissa. Svo núllaðist þessi heppni út mörgum árum seinna þegar hann var á fylleríi niðrí bæ og maður hjólaði á hann (ætli það hafi verið sá sami?) og hann datt og fékk gat á hausinn. Ég sjálfur hjólaði einu sinni á ljósastaur og braut hjálminn minn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok