Jæja nú ætla ég aðeins að tjá mig hérna, sko hversu virkilega geta menn verið virkilega lélegir?
Málið er að ég er á Akureyri og síðustu helgi fer ég í sjallan á djammið með einum félaga mínum,málið er að ég er frekar nýfluttur hingað og þekki ekkert marga hérna en maður hefur nú ekki lennt í böggi í mjög langan tíma þar sem maður er að nálgast 24 ára aldur og er ekkert sérstaklega mikið gefinn fyrir slagsmál(mér fynnst og hefur alltaf funndist margt skemtilegra hægt að gera á djamminu annað en að slást og leiðindi) en allavega rekst ég á einhverja stelpu sem ég kannast lauslega við og förum eitthvað að chatta nett bara en allt í einu kemur þessi asnalegi drengur og byrjar að rífa kjaft við mig, spyr hvort ég sé að reyna við kærustu vinar síns og lætur eins og hann sé bara þvílík hetja einhver, en ég var bara ekkert að reyna við þessa stelpu var ekki einu sinni að spá í því og segi bara nei og hélt að þar með væri það bara komið en neinei þá verður hann að koma allveg uppí andlitið á mér og fara segja það sé líka eins gott og ég skuli bara drulla mér í burtu og ég sé ekki neitt en ok svona ræflar pirra mig allveg mikið þannig ég bara stend á móti honum og svara fullum hálsi hvort það se´ekki í lagi með hausinn á honum og eitthvað bla en allt í einu kemur einhver vinur hans og hryndir mér og annar stendur fyrir aftan mig og tekur mig hálstaki og áður en ég veit af er ég búinn að fá nokkur högg í andlitið frá fjórum strákum og síðan var Mér hennt út af sjallanum!!

Jæja ok ég rölti þá yfir á kaffi ak einn þar sem vinur minn er ennþá inní sjallanum þá held ég bara áfram að djamma en samt soldið mikið pirraður yfir rétt yfirstöðun atburðum, síðan fer ég út og mæti þá einum af þessum ræflum sem réðust á mig inní sjalla hann var einn og ég einn og ég bara fer beint að honum og við eitthvað tökumst smá á ég ætla bara fá hann með mér aðeins útfyrir bæjinn og leifa honum að reyna lemja mig einn þar sem hann var svo mikil hetja að ráðast á mig með nokkrum öðrum en þá bakkar hann þvílíkt og fer þvílíkt að sleikja mig upp bara segja +eg vil ekkert bögg þetta ver ekkert mér að kenna inní sjalla og blabla við tölum saman í svona hálftíma og ég spyr hann nokkrum sinnum að því svona hvað gerist svo næstu helgi eða eitthvað ef ég mæti þér ætlarðu þá að koma með vini þína með þér og ráðast á mig og hann allveg nei maður ég er nýbúinn að eignast barn og vil ekkert vera að standa í svona dæmi neitt og það endar á því að við tökumst í hendur, bara sáttir.

Þetta var soldið seint þannig ég ákveð bara að fara rölta af stað heim en þá lít ég aftur fyrir mig og sé ég þá ekki þennan ræfil koma hlaupandi á eftir mér með vini sínum öskrandi ég laug að þér og þeir stökkva á mig síðan lendi ég í því að þeir eru sitthvoru meginn við mig reyna að sparka mig niður slá mig aftan frá þannig ég sé ekki höggin, þeir ná mér einu sinni niður og sparka nokkuð oft í mig allstaðar sem þeir gátu hitt en ég náði að reysa mig á fætur og held bara áfram að reyna eftir fremsta megni að verja mig það er ekkert annað sem ég get gert því þeir eru báðum meginn við mig og ef ég reyni eitthvað á móti öðrum þeirra fæ ég högg frá hinum sem ég sé ekki.

En þetta endar síðan þegar löggana kemur og stoppar þá af, ég er sendur uppá sjúkrahús nefbrotinn,fimm tennur brotnar þar á meðal tvær framtennur, glóðurauga á báðum,skurð á enninu og undir vinstra auga,sprungnar varir, marinn á hálsinum,bakinum,höndunum ofl.

Það fyrsta sem ég geri þegar ég vakna er að fara og kæra að sjálfsögðu!

En málið er hvað þurfa menn að vera með lítil eistu og lélegar manneskjur til að gera svona? Að vera tveir eða fleiri að ráðast á einn sínir svo lítinn manndóm og dómgreindarbrest að það er bara ekki fynndið, ég meina dreng ræfillin þorði ekki að fara með mér einn þá hann hafi allveg vitað að ég var ekki með neinum eða neitt vopnaður eða neitt! ‘Eg meina hversu mikill aumingi er hann!!

Þa’ er ekki langt síðan það er mikið búið að vera tala um strák sem Dó í rvk í fyrra útaf barsmíðum frá einhverjum tveim fávitum sem hann þekkti ekkert, þeir fengu einhverju fáránlega lága dóma!
'Eg meina ef löggan hefði ekki komið þá veit ég ekki hvað hefði komið fyrir því ég vissi af fleiri vinum þeirra sem voru að rölta að þessu í rólegheitunum kannski til að taka þátt eða eitthvað en allavega þessir aular voru ekkert að fara hætta að lemja á mér hvað ef ég hefði fengið högg á hausinn sem hefði drepið mig eða örkumlað?

Hvað er ykkar skoðun á þessu máli? Þetta er búið að vera ógeðslega langt ég veit en ég er bara virkilega pirraður á þessu öllu saman og fynnst hundfúllt að hafa lent í þessu!