Ég bý í Kanada og til þess að mæta í vinnu kl. 7 þarf ég að taka strætó kl. 6 og geri aðrir betur. Það hvarflar samt ekki að mér að fá mér bíl. Ég bara hreinlega tími því ekki. Ég gæti vissulega keypt mér einhverja ódýra druslu en spáðu í hvað það kostar að reka þetta. Ertu búinn að hugsa útí hvað tryggingarnar munu kosta þig, bifreiðagjaldið og svo bensín, skoðun, viðgerðir, dekk o.s.frv. o.s.frv.