Þar sem ég er að fara busa nokkur grey í skólanum mínum þá datt mér í hug að pósta hérna svosem einni grein með nokkrum hugmyndum sem ættu að gleðja hugmyndasnauða böðla útí hinum stóra heimi.

.:SKILTI:.
Best er að byrja á hinum klassísku skiltum sem oftar en ekki eru gerð úr spotta og pappaspjaldi. Á þessi spjöld eru svo skrifaðar setningar sem eiga að vera vandræðalega fyrir busann. Hér eru nokkrar sem ég sá á bloggari.is og aðrar sem ég man frá því ég var sjálfur busaður

“Ég geng í samfellu af ömmu”
“Ég er til í allt nema kynlíf því ég er hreinn sveinn”
“Yeah, I was jackin off…let me shake your hand”
“Opið 24/7” (ör niður)
“Ég refsaði ömmu í trúboðanum”
“Ég fer reglulega til Utah, því þar get ég verið giftur tveimur krakkmellum í einu”
“Móðureljari”
“Það myndi enginn deita mig, jafnvel þótt að það væri engar kindur til”
“Má ég naga táneglurnar á þér”
“nördar þurfa líka drátt”
“ég er trukkalessa”
“Ég pissa undir”
“Bremsuför eru sexy”
“Sjálfsfróun er mitt hobby”
“Þú ert það sem þú borðar, hor og sand takk!”

.:ÚTLIT:.

Vaselín eða júgursmyrsl í hárið. Það má krydda uppá hlutina með því að blanda hvítlauksbragðefnum (sem fást í næsta mjólkursamlagi)
saman við smyrslið og þá ertu kominn með frekar slæma lykt sem erfitt er að ná úr.

Hjálpræðisherinn er með mikið úrval af ljótum fötum sem flestar gelgjur telja ígildi tískusjálfsmorðs að ganga í… gott er að notfæra sér þennan veikleika.. svo getur maður líka fundið eitthvað retro á sjálfan sig í leiðinni

Flestar leikfanga búðir eru með sprey í hárið sem er hægt að fá í mörgum litum.

.:MATUR:.

Hér eru nokkrar uppskriftir af góðu busafæði.

Lýsi + gráðostur mjög slæmt combo
Kanill einn og sér.. prófaðu að láta hann borða eina teskeið
Óhrært skyr
Hrá egg + tabasco sósa

Passið að hafa ekkert “drykkjarhæft” við hendina nema mysu, soðið kók eða eitthvað þess háttar

Ef þið hafið einhverjar hugmyndir sem má bæta við á listann, hikið ekki við að smella þeim hérna inn. :)