Hvað meinarðu með hvítta? Þú getur lakkað, sprautað eða málað hvítt. Ef það er það sem þú ert að meina, farðu þá í málningarbúð og biddu afgreiðslufólkið að ráðleggja þér. Ef þetta er ólakkaður viður, þá getur þú notað hvítt bæs eða bleikiefni til að lýsa hann. Fáðu upplýsingar um það í BYKO eða Húsasmiðjunni hvort þeir geta hjálpað þér. Ef viðurinn er lakkaður en þú vilt samt nota hvítt bæs eða bleikiefni getur þú pússað lakkið af en það getur verið slatta vinna, fer eftir því hvað er mikið...