Einu sinni þegar ég var í heimsókn hjá systur minni skrapp ég með henni út að versla. Hún tók dætur sínar með, yngsta var þá 3ja ára og elsta líklega 13 og það heyrðist ekki píp í neinni þeirra. Ekkert suð, ekki neitt. Þær vissu bara að það þýddi ekki. Hún hefur líka alltaf verið ströng. Þegar ég sé krakka suða í búð þá hugsa ég . o O (Þessum hefur verið látið eftir, þess vegna er hann að suða.) Ef það hefur aldrei verið látið eftir krökkum sem eru að suða eða heimta þá gera þeir það ekki....