Þvílíkt! Hérumbil ónýt helgi!!! Fyrrverandi kom með strákinn í dag. Og þvílíkt er hún ömurleg! Það er hrikalega leitt að segja þetta (þar sem að ég sá ekki sólina fyrir þessarri manneskju) en þetta er bara staðreynd. Hún var varla kominn inn í forstofu þegar hún byrjaði að nöldra. Ekki svona að endurtaka eitthvað, heldur bara nöldra! Og út af einhverju smáatriði!!! Ég bara núna, skil ekki hvað ég sá við þessa manneskju, í allann þennan tíma. Hún heillar mig ekki rassgat núna! (Afsakið frönskuna) Hún er bara barnaleg og óþroskuð og notar hvert tækifæri til þess að nöldra í mér “ef þú ætlar að sjá son þinn”! Ég þoli ekki svona hótanir því að hún hefur svo miklu meiri rétt en ég. En sem betur fer stoppaði hún ekki lengi og við skemmtum okkur konunglega eftir að hún fór. Svo er hún alltaf að vara mig við því að hann sé búinn að vera geðveikt erfiður og sofi illa og nag, nag, nag! En svo núna er hann steinrotaður og á eftir að sofa út, eins og seinast hjá mér! (NB. við setjum hann í rúmið á sama tíma!) Hún bara fattar það ekki að hún sinnir honum ekki rassgat (afs. frö.) og þessvegna lætur hann svona! Svo þegar við erum saman þá glampar á geislabauginn hans og í öllum hasarnum hjá okkur hrynja fjaðrir af vængjunum, og glamrið í hörpunni heyrist for miles, and miles! (Hann er engill!!! ;) En allavegana, “alvöru” vondar mömmur eru bara ömurlegar!!! Bið að heilsa í bili
Ótrúlega fúll
Gromit