Eilíf hamingja, pabbahelgi framundan. Núna verður ekkert sofið í nótt. Maður finnur það alveg greinilega hvað þessar helgar gefa manni mikið. Eftir helgina er maður hálf-sorry og fyrir helgina er maður alveg upptjúnaður! Þetta er frábært en það er bara verst hvað þær taka fljótt enda. Mér finnst að það ætti að bæti við einum helgardegi við, til þess að lengja helgina. En allavegana þá óska ég ykkur góðrar helgi, því ég veit að mín verður frábær!