Mamma kom til mín í kvöld og var að segja mér frá kennara í Hvaleyrarskóla, bróðir minn er þar í 9 bekk og á kærustu í 8 bekk. Þessi kennari sem heitir Þorsteinn er bara eitthvað bilaður!!! Hann er alltaf að taka kærustu bróður míns á eintal og spurja hana af hverju hún sé með honum og að honum finnist að hún ætti að vera með einhverjum öðrum strák, kemur honum þetta eitthvað við??? NEI hann er bara þvílíkt bilaður. Svo var bróðir minn veikur og vissi ekki af prófi hjá þessum kennara, svo mætti hann í skólann nokkrum dögum seinna og bað um frest en þá sagði hann, nei þú varst ekkert veikur og gast alveg lært, en vinur hans fékk að fresta sínu af því að mamma hans og pabbi höfðu komið brjáluð upp í skóla út af því að kennarinn hafði snúið svo hrottalega upp á eyrað á honum í einhverri skólaferð og hann var bara allur marinn og blár. Mamma fór upp í skóla og talaði við Helgu skólastjóra og hún kallaði á þennann kennara til þeirra. Hann reyndi að koma sér út úr þessu og sagði að þetta væri bara misskilningur, hann hafi aldrei sagt við kærustuna hans að byrja með einhverjum öðrum, en hann vildi alls ekki fá bróður minn inn til þeirra til þess að ræða málin, kennarinn sagði að hann myndi bara spjalla við hann einn af því og sagðist þekkja hann svo vel og þetta væri besta leiðinn en mamma sagði við hann að hún ætlaði að vera viðstödd því þegar þeir myndu spjalla saman og svo rauk hann bara út og skólastjórinn á eftir honum og mamma heyrði þegar kennarinn sagði: mér lýst ekkert á þessa mömmu!!! Skólastjórinn kom aftur inn og sagði að hún hafi ekki farið rétt að honum eða eitthvað svoleiðis og sagðist bara halda fund daginn eftir með mömmu, bróður mínum og kennaranum, en viti menn kennarinn fór beinustuleið til bróður míns og tók hann út úr tíma þrátt fyrir að mamma var búin að banna honum það. Hann sagði við hann að þetta væri bara misskliningur og að þeir ættu ekkert að vera að gera mál úr þessu. Svo var fundinum bara aflýst. Kennarinn segist vera mest sár út í kærustu bróður míns af því að hún kjaftaði í bróður minn, það er ekki eins og hún og kennarinn séu trúnaðar vinir.

Hvað er að??? Af hverju fær þessi maður að kenna börnum??? Hann er bara eitthvað alvarlega bilaður, það ætti nú bara að reka hann, hann hefur ekkert að gera með það að kenna börnum svona bilaður.
Djöfull er ég reið.

Kveðja
HJARTA.
Kveðja