DV, Mið. 20. des. 11:09
Barni misþyrmt
Lögreglan í Hafnarfirði leitar eftir vitnum að hrottalegri árás unglingspilts á 10 ára gamalt barn um hádegisbilið á mánudag við gömlu sundlaugina í Hafnarfirði.

Forsaga málsins er sú að nokkur börn voru að kasta snjóboltum í bíla við sundlaugina þegar einn bíllinn, talinn vera hvítur jeppi, var stöðvaður og unglingspiltur vatt sér út farþegamegin. Hann réðst að einu barnanna, 10 ára gömlum dreng, en að sögn lögreglunnar er óvíst hvort sá drengur hafi verið að kasta snjóboltum. Að sögn aðstandenda barnsins kýldi pilturinn barnið í magann, skellti því utan í vegg og síðan í götuna og steig ofan á það.

Kona, sem börnin töldu vera móður piltsins, sat undir stýri á meðan þessu fór fram. Þegar pilturinn var búinn að tuska barnið til kallaði konan í piltinn og skildu þau við barnið liggjandi í götunni. Drengurinn þurfti á læknisaðstoð að halda eftir barsmíðarnar, en hann fékk snert af heilahristingi við þær og er marinn og skrámaður víða um líkamann.

Aðstandendur drengsins hafa kært málið til lögreglunnar. Lögreglan í Hafnarfirði hvetur þá aðila sem áttu hlut að máli, eða hugsanleg vitni að atburðinum, að hafa samband við sig sem allra fyrst.



Þetta er akkurat það sem ég var að tala um.. krakkar henda boltum í bíla og fólkið brjálast.. ekki skrítið en þetta er nú full hart! Þarna er unglingsdrengurinn sko alls ekki að sýna neinn meiri þroska en litli strákurinn! Hræðilegt!!