Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Það er aldrei friður

í Tilveran fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Vá, rosalega ertu vinsæll. Smá ráð. 1. Gerðu það sem Dobermann segir og láttu setja þig á bannlista. Ef þeir hringja samt, fáðu þá að vita hvaða fyrirtæki stendur fyrir hringingunum og hótaðu að kæra. Þetta eru nefnilega oft fá fyrirtæki sem eru í hringingunum sem verktakar og þeirra verklag ræður því hvort það er farið í símaskrána og hringt frá A til Ö eða hvort það er bara hringt í þá sem eru ekki á bannlista. Mamma var nefnilega að vinna hjá slíku fyrirtæki í einhvern tíma og gat verið...

Re: Hvernig á fólk að lifa af 80.000 kr.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Af hverju ekki? Ef allir hverfa úr þessum lægst launuðu störfum, þá neyðast þeir til að hækka taxtana, ekki satt?

Re: Hjálp!!

í Skóli fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Án þess að vita það þá grísa ég á að flétta sé söguþráðurinn. Flækja hlýtur að vera þegar söguþráðurinn flækist. Ris er þegar verið er að byggja upp að einhverjum hápunkti og lausn er þegar greiðist úr flækjunni :)

Re: Að hætta í skóla

í Skóli fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég veit um einhverja. Ástæður t.d. gekk illa í skóla, vantaði pening, lenti í barneignum eða bara nennti ekki. Það væri hægt að minnka brottfall úr framhaldsskólum með því að borga fólki fyrir að vera í þeim og gera þá skítlétta en þá myndi skólinn nú ekki beint þjóna tilgangi sínum. Ég er hins vegar ekkert sammála því að það þurfi að minnka brottfall. Einhverjir verða líka að vinna þau störf sem ekki krefjast menntunar.

Re: Kötturinn Pétur

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það getur líka vel verið að hann hafi bara fundið sér annað heimili. Því meira sem kettir flakka, þá kíkja þeir heim til fólks og væntanlega enda þar sem þeim líkar best :)

Re: Geirsnef !

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Nældu þér í málband og tékkaðu hvað hann er stór. Yfirleitt er stærð hunda mæld uppá herðakamb, ekki haus. Svo ef þú vigtar hann, ef hann vill ekki sitja á vigtinni, á bara heldur þú á honum og vigtar þig og dregur svo þig frá. Best samt að fá einhvern með þér til að lesa á vigtina því það er ekkert rosalega gott að sjá niður þegar maður er með stóreflis hund í fanginu. Annars finnst mér ekki að það skipti neinu máli þó hann væri smá blandaður eða passaði ekki alveg inní reglur fyrir...

Re: Collie

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég held að þú getir fengið myndir skrifaðar á geisladisk þegar þú lætur framkalla, alla vega hjá Kodak. Það er líklega líka hægt að fá að skanna myndir í Kodak búðum.

Re: Er Nokia að valta yfir samkeppnina

í Farsímar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Nokia símar eru alveg til í Bandaríkjunum. Þeir hafa bara ekki svona rosalega markaðshlutdeild eins og á Íslandi og ég efast um að þeir hafi það í restinni af Evrópu heldur. Ég er í Kanada og þar er enginn að spá í hvort þú átt gemsa eða hvernig gemsa. Mjög margir kaupa sér síma á tilboði með samning í eitt ár. Ég er með svoleiðis dæmi, Motorola eitthvað. Ágætis sími, virkar alla vega fínt :)

Re: Fáránlegur Fótboltaleikur

í Sorp fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Skv. FIFA listanum á http://www.fifa.com/rank/index_E.html þá er Madagascar í 101. sæti. Að vísu slatta lélegri en við en fyrir ofan Færeyjar :)

Re: Hvenær verður fóstureyðing, fóstureyðing?

í Tilveran fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Að mínu mati er það fóstur meðan það getur ekki lifað utan líkama konunnar. Eftir það er það ófætt barn.

Re: Stækkun ESB - afleiðingar fyrir Ísland

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég veit ekki hvernig Eistneskur fiskur er en ég var í Finnlandi fyrir nokkrum árum og sögðu Finnarnir þá að Finnskur fiskur væri ekki góður vegna þess að það væri svo mikil mengun hjá þeim þannig að ég býst við að það sé þá sama með Eistneska.

Re: Fóstureyðingar-Réttur föðursins

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég þekki nokkur dæmi um stelpur sem hafa verið að fara í eyðingu oftar en einu sinni og finnst það ekkert mál. Hins vegar kemur okkur víst við hvort þær þjást seinna út af eyðingunni eða enda sem einstæðar á kerfinu vegna þess að þetta er okkar sameiginlega kerfi. Ef manneskjan verður seinna þunglynd og gengur til geðlæknis vegna þessa og tekur lyf, þá erum við að borga. Eins ef hún er einstæð á kerfinu þá erum við líka að borga. Þess vegna vil ég fá meiri áróður fyrir getnaðarvörnum til að...

Re: MAðurinn hennar Celine Dion

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Hvaðan hefurðu það að hann hafi sagt að hún væri ljót og hafi sent hana í lýtaaðgerðir? Það eina sem ég set spurningamerki við er að hann er búinn að vera umbinn hennar síðan hún var 14 eða eitthvað og hann er svo mikið eldri en hún að það er ekki fyndið. Lítur frekar illa út að hún giftist honum síðan eða ég get alla vega ekki varist því að spá í hvað hann er búinn að vera að negla hana lengi. Kannski er ég bara perri.

Re: litla krúsidúllan mín!!!!

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Hundurinn minn var oft með þurrt nef þegar hann var búinn að vera sofandi.

Re: Grænmetisætur

í Heilsa fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ef þið ætluðuð virkilega að prófa þá ættuð þið að fara á eitthvað grænt veitingahús, t.d. grænt og gott eða grænan kost eða hvað það heitir og prófa alvöru grænmetisæturétt. Alvöru grænmetisætur elda mikið úr baunum og svoleiðis og það er ábyggilega ekkert auðvelt að ætla sér að gera svoleiðis einu sinni bara til að prófa því það tekur alltaf nokkur skipti að verða góður í að elda úr hráefni sem maður þekkir ekki.

Re: Hvernig á að góma þjóf ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þvílíkt fyrirtæki! Láttu endilega vita þegar/ef þú nærð í skottið á þjófnum :)

Re: Rottweiler og Dobermann

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég veit ekki, kannski af því þeir eiga svo marga þætti?

Re: Hugsanlega nýja ríkisstjórnin í Ísrael

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
thulesol: Ég man ekki til að hafa sagt neitt um að þú værir í Sjálfstæðisflokknum eða horfðir á Omega.

Re: Collie

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það er sama tegundin. Þetta fann ég t.d. á einni heimasíðunni: “Shetland Collie Club (1908) ”height shall not exceed 15 inches…A register shall be kept of members' dogs 12 to 15 inches.“” Greinilega hefur þekkst að kalla þá Shetland Collie árið 1908 þó flestir kalli þá Shetland Sheepdog í dag. Það var líka minnst á English Shetland Collie Club (1914) og Scottish Shetland Collie Club (1909)

Re: Geirsnef !

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Grey voffi. Er hann ekkert skemmdur eftir þetta illa atlæti?

Re: Grænmetisætur

í Heilsa fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það má borða egg og mjólkurvörur, ost og brauð, flögur, nammi og gos ;) Sojakjöt, tofu, baunarétti. Pasta og hrísgrjón. Náttúrulega grænmeti og ávexti. Það eru líka til grænmetisætur sem borða ekki egg og mjólkurvörur.

Re: Collie

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Margt fólk í Bandaríkjunum heldur að Golden-Lab sé tegund ;) Ég reifst einu sinni við mann sem sagði að Golden Lab væri tegund og þeir væru síðhærðir en ég sagði að annað hvort væri hundurinn Golden Retriever og væri síðhærður eða Labrador Retriever og væri stutthærður. Þetta er hins vegar eitthvað algeng blanda. Hins vegar þegar er talað um skosk-íslenskt, þá virðist mér það hafa verið notað um flesta hunda sem eru íslensk blandaðir og fólk veit ekki við hvað ;)

Re: Hvaða rétt hefur maður gagnvart lögreglu???

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þeir mega ekki leita í bílnum án heimildar en ef þú bannar þeim að leita í bílnum þá er spurning hvort þeir fara ekki með þig niðrá stöð á meðan þeir finna sér upp einhverjar ástæður og redda heimild. Sem sagt gæti tekið þig allan daginn að ná fram rétti þínum.

Re: Um könnun: "Er fátækt á Íslandi?"

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þetta er ekki rétt hjá þér með lífeyrissjóðsgreiðslurnar því þær eru undanþegnar staðgreiðslu allt að 8%: Þetta er beint af vef RSK: “Frádráttarbært iðgjald í lífeyrissjóð Lífeyrisiðgjald sem halda má utan staðgreiðslu er 4% af launum eða reiknuðu endurgjaldi. Heimilt er að auki að færa til frádráttar allt að 4% vegna iðgjalda samkvæmt samningi um viðbótartryggingavernd, enda séu iðgjöld greidd reglulega til aðila sem falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og...

Re: Rottweiler og Dobermann

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Já, kl. er ekki orðin 6 hjá mér. Ég sit uppí sófa og er að horfa á Simpsons :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok