Umboðsmaðurinn hennar Celene Dion sagði að hún væri allt of ljót til að verða fræg. Hann sendi hana í fullt af aðgerðum til að laga og breyta náttúrulegu útliti hennar. Svo GIFTIST hann henni! Ber manneskjan enga virðingu fyrir sjálfri sér eða hvað!! Í fyrsta lagi segir maðurinn henni að hún sé ljót og óaðlaðandi, sem ætti nú að duga alveg til þess að hún færi að hata hann, og í framhaldi af því sendir hann hana í fullt af lýtaaðgerðum. Hann var örugglega ekki að hugsa um hennar hagsmuni þegar hann pantaði hjá lýtalækninum. Hann gerði það svo að hann gæti grætt meira á fallegu röddinni hennar! Ég veit ekki með ykkur, en ef einhver myndi segja við mig að ég væri viðbjóðsleg þá mundi ég aldrei tala aftur við hann! Hvað finnst ykkur?