Endilega skelltu þér. Ég fór tvisvar og skemmti mér mjög vel. Almennt er fólki komið fyrir í stúdentaíbúðum eða heimavistum. Þú gætir þurft að deila herbergi með einhverjum en ef svo er, þá borgarðu alla vega lægri leigu :) Vinnuveitendur ráða líka Nordjobbara oft ár eftir ár og engar rosalegar kröfur, allt í lagi að mæta þunnur og svoleiðis. Svo er mikið félagslíf í Nordjobb, ferðalög og skemmtikvöld. Þú mátt búast við að kynnast meira hinum norðurlandaþjóðunum heldur en fólkinu í því landi...