Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Stöð eitt... til hvers?

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
En getur þú lifað án sjónvarps? :) Ég er ekki að mæla RÚV bót en meðan þetta er í lögum þá hefur maður frekar lítið val. Ég myndi vilja sjá afnotagjöldin lögð niður og allt drasið selt nema rás 1. Rás 1 rúlar.

Re: Tryggingarsaga - framhald

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég þekki nokkra sem hafa lent í að hafi verið stolið frá þeim hjóli og þá þarftu að sanna að þú hafir átt lás! Hver geymir kvittanir fyrir svoleiðis smáhlutum? Enda var það sem flestir gerðu að ef þjófurinn var ekki svo tillitssamur að skilja sundurklipptan lásinn eftir þaðan sem hjólinu var stolið þá keypti fórnarlambið sér bara lás, klippti hann og fór með í tryggingarfélagið sem sönnun :) Annað sem ég heyrði um. Ef flæðir inní hús vegna sprungins rörs, þá var það ekki bætt en ef það var...

Re: Áhrifa mesta auglýsing sem ég hef séð....

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég sá þátt í sjónvarpi um daginn um náunga sem var að vinna í dulargervadeild CIA en fór á eftirlaun og fór þá að búa til grímur fyrir fólk sem einmitt var mjög illa farið. Það var einmitt einn maður sem leit svipað út og þessi kona ef ekki verr. Hann hafði einmitt lent í bílbruna.

Re: Fella niður virðisauka á barnaföt.

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég vil ekki hjálpa barnafjölskyldum. Ég vil hjálpa fátækum. Það er fullt af fólki sem á börn sem á nógan pening og þarf enga hjálp. Af hverju ættum við þá að vera að eyða pening í það meðan annað fólk sem er fátækt líður skort?

Re: Áhrifa mesta auglýsing sem ég hef séð....

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Sorrý, ég hefði átt að gera það en ég hugsaði meira um aumingja manneskjan að líta svona út. Ekki gaman að horfa í spegil eða fara út úr húsi og sjá viðbrögð annarra.

Re: Fella niður virðisauka á barnaföt.

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
En þetta lendir náttúrulega útí skattkerfinu líka og kemur þá niður á þeim sem eiga ekki börn, þar á meðal öldruðum á meðan ef VSK af mat væri afnuminn myndu allir njóta góðs af því.

Re: Fella niður virðisauka á barnaföt.

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Mér finnst nú eitthvað að því ef lítið fólk á að geta fengið á sig ódýr föt bara vegna þess að það getur gengið í barnafötum. Auk þess, ef það væri miðað við 130, þá væri það ekki nema uppí svona 8 ára og fólk sem ætti eldri börn myndi kvarta. Ef það væri 150 erum við að tala um svona 11 ára og fólk sem ætti eldri börn myndi kvarta. Jafnvel þó við færum uppí ennþá hærra myndi ábyggilega einhver manneskja með 16 ára son sem er 200 kg. og 190 á hæð kvarta yfir því að hann væri ennþá barn og...

Re: Tryggingarsaga - framhald

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég lenti í því þegar ég var hjá TM að ég lenti í tjóni og var í órétti og tjónamatsmaðurinn ráðlagði mér að fá gert við það svart þar sem tjónið væri rétt í kringum sjálfsábyrgð. Verkstæðið sem gerði við sagði að tjónið væri um tvöfalt meira en tjónamatsmaðurinn sagði og þeir græjuðu að það var bætt í gegnum trygginguna.

Re: Smá hugleiðing um skattamálin

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ok, þeir vinnuveitendur sem vilja halda í gott starfsfólk borga betur. Ég þekki stelpu sem vinnur í matvælaiðnaði og hún hefur farið reglulega til yfirmannsins og hótað að hætta ef hún fái ekki hækkun og hún fær alltaf hækkun. Greinilega vill hennar vinnuveitandi frekar halda henni í vinnu en að skipta henni út fyrir útlending á lágmarkslaunum sem hann þarf að byrja á að þjálfa upp.

Re: Töfrakletturinn

í Húmor fyrir 23 árum, 7 mánuðum
ljóska? :) Hann var að sjálfsögðu að stökkva út í laugina þegar hann hrasaði á stökkbrettinu og sagði “shit” og datt ofan í laugina sem samstundis fylltist af skít.

Re: miðstöð- pottjárnsofn

í Heimilið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég hef bara aldrei séð eða heyrt um neitt skynjara vírstykki sem hangir út úr ofnum. Samt bjó ég í íbúð þar sem voru svona gamlir pottjárnsofnar og kraninn á einum var einmitt bilaður. Ertu viss um að þetta sé ekki bara eitthvað aukadót? Ef þú heldur að þetta sé skynjari, þá geturðu farið í píparabúðir og spurt að þessu. Ef það er skynjari, þá hljóta þeir að eiga svoleiðis og geta selt þér.

Re: Spurning

í Farsímar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ef hann er í ábyrgð áttu að fá gert við hann frítt. Ef ekki, þá geturðu farið með hann í viðgerð en gæti orðið erfitt að fá vin þinn til að borga ef hann á ekki pening eða finnst þetta ekki vera sér að kenna. Samþykkir hann að hann hafi skemmt símann og eigi að borga?

Re: Skátastarf og aðrar hreyfingar

í Skátar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Amerísku skátarnir voru að reka einn í viðbót og í þetta skiptið fyrir að vera trúlaus. http://www.komotv.com/stories/21204.htm

Re: Ryksuga

í Heimilið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Hah, þú bara færð að gista hjá bræðrum þínum um helgar. Málið leyst :) Annars gætir þú líka tekið einhvern part af ryksugunni og falið undir rúmi hjá þér svo hann getur ekki byrjað fyrr en þú ert kominn á fætur en hann gæti líka orðið frekar fúll.

Re: miðstöð- pottjárnsofn

í Heimilið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Gæti verið að kraninn væri bilaður eða pinninn í krananum eitthvað stífur. Skrúfaðu kranann af. Það koma nokkrir vatnsdropar en ekkert til að hafa áhyggjur af. Þegar kraninn er farinn af geturðu tekið pinnann úr og smurt hann. Ef það er ekkert betra, prófaðu þá að taka krana af ofni sem virkar og setja á þennan ofn og tékka hvort hann fer þá að virka. Ef svo er, þá var kraninn bilaður og bara kaupa nýjan. Ef ekki.. tala við pípara? :)

Re: Af hverju

í Hátíðir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ó, og meðan ég man. Kettir eru skrímsli! :)

Re: Af hverju

í Hátíðir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Jólatréð er einhver þýsk uppfinning sem komst til Bretlands vegna þess að drottningin þá, Viktoría, var gift þjóðverja. Tímasetning á jólunum er álitin vera vegna þess að fólk hélt sínar sólrisuhátíðir upphaflega 22. eða 23. des. eftir að sólin hefur farið sem lægst og fer að rísa aftur en líklega hefur dagatalið þeirra farið eitthvað úr skorðum og þeir ekki alveg nógu góðir í að reikna út hvenær þetta ætti að vera þannig að hátíðin lenti aðeins seinna. Svo þegar trúboðar voru að kristna...

Re: Smá hugleiðing um skattamálin

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Fyrirtæki sem gengur vel hefur þann hvata að borga betur til að halda í gott starfsfólk.

Re: Hver á Ríkið?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Foreldrar mínir byrjuðu að byggja '53. Þá þurfti samþykki fyrir öllu efni sem þú ætlaðir að nota í húsið þitt þar sem allt var innflutt. Það var þá nefnd sem sagði þér hvað þú mættir kaupa mikið timbur og mikið sement. Það var bannað að smíða girðingar eða steypa vegg í kringum húsið þitt þar sem það var sóun á efni. Og það er heldur ekki svo langt síðan, kannski 15 ár eða svo, að þú gast ekki labbað inní banka og keypt gjaldeyri. Þú þurftir að vera með farmiða út og þá máttirðu kaupa en...

Re: Áhrifa mesta auglýsing sem ég hef séð....

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það var bil í honum: <a href="http://www.npr.org/programs/atc/features/2002/oct/texas_dwi/poster_lg.jpg">http://www.npr.org/programs/atc/features/2002/oct/texas_dwi/poster_lg.jpg</a> Annars held ég samt ekki að svona auglýsingar hafi áhrif á fólk sem keyrir fullt. Fólk heldur alltaf að það komi ekkert fyrir það sjálft.

Re: Fella niður virðisauka á barnaföt.

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Og allar tæjurnar myndu kaupa barnaföt á sig því þær eru svo litlar ;)

Re: P.S.

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég fór líka frá TM til Sjóvá en passaði ekki að tékka á að sjálfábyrgðin var hærri. Svo lenti ég í tjóni og þá var sparnaðurinn farinn. Annars er helst að fá út úr tryggingunum ef þú lendir í bruna. Það getur verið góður biti að endurnýja allt innbúið sitt, jafnvel þó fólk leggi inn þennan 16 þús. kall á ári í einhver ár, þá dugar það ekki til. Foreldrar mínir lentu í bruna og fengu það bætt. Þau eru hjá TM.

Re: Hengdu kött fyrir framan leikskólabörn!!

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Nákvæmlega. Ef kettir væru nógu stórir myndu þeir ekki hika við að éta okkur. Vegna þess að þeir eru litlir finnst okkur voða sætt að horfa á þá stökkva á flest sem hreyfist. Hins vegar finnst mér nú umræða um það hvort kötturinn væri saklaus eða ekki, eins og einhver annar var að spá í, vera komin á svolítið annað stig. Dýr eru alltaf saklaus. Þau fylgja sínu eðli. Ef köttur étur páfagauk einhvers þá er það ekki kettinum að kenna. Hann var bara að gera það sem hann var skapaður til. Hins...

Re: Töfrakletturinn

í Húmor fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég heyrði hann fyrir langa löngu og þá áttu þeir að vera að stökkva ofan í sundlaug. Fyrsti sagði “bjór” og sundlaugin fylltist af bjór, næsti sagði “seðlar” og hún fylltist af seðlum. Ok, þið vitið hvað kom fyrir þriðja :)

Re: Er þetta sign??

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég myndi segja að þetta væri sign. Dreymir þær yfirleitt fyrir börnum? Mömmu dreymir fyrir börnum en hún hefur einu sinni haft rangt fyrir sér. Þá spáði hún fyrir að systir mín myndi eignast strák en hún eignaðist stelpu. Hins vegar eignaðist bróðir minn strák innan við ári seinna þannig að hún vill meina að hún hafi ekki haft alveg rangt fyrir sér :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok