Ég er kannski ekki alveg nógu mikill fótboltaunnandi til að kannast við efstu deildina í Madagaskar, en um daginn kom þar undarlegasta útkoma úr fótboltaleik sem ég hef séð. Staðan í lok var 149-0, og þá erum við að tala um knattspyrnu eins og er spiluð hér á landi. Það voru reyndar ekki svona miklir yfirburðir heldur byrjaði annað liðið að skora fullt af sjálfsmörkum til að mótmæla einhverjum ósanngjörnum dóm.

Þetta eru þá flest mörk sem hafa verið skoruð í leik í efstu deild, hitt liðið gat ekkert annað gert en að fylgjast með þeim skora sjálfsmark, taka miðju, skora sjálfsmark o.s.frv.