Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Gardínu- og blómapotta áhugamál

í Hugi fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það er. Hins vegar heitir það heimilið ;)

Re: Björgum Dalakot

í Skátar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Auglýsið eftir smiðum eða laghentum sem voru skátar eða látið berast meðal skáta að það vanti laghenta ættingja sem eru til í að hjálpa. Svo bara lappið þið uppá hann sjálf :)

Re: Chekkiði á þessu

í Tilveran fyrir 23 árum, 7 mánuðum
HAHAHAHA! :D

Re: Könnun um einelti

í Tilveran fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þú hefðir nú ekki komist langt með að reyna að berja hrekkjusvínin í mínu hverfi. Þeir hefðu bara ráðist á þig nokkrir saman og tekið niðrum þig eða eitthvað. Þeir höfðu sem betur fer ekki mikinn áhuga á mér :)

Re: Til Parísar um jólin...

í Ferðalög fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Best að taka bara upp símann og hringja á allar ferðaskrifstofunar + Flugleiði. Samt held ég ekki að jólaferðir til Parísar séu neitt rosalega algengar þannig að það er ekki víst að þið getið fengið nein tilboð.

Re: hvernig kemst ég til...

í Ferðalög fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Flugfélag Íslands flýgur til Kulusuk og svo geturðu fengið flug með Air Greenland til annarra staða á Grænlandi. Þú getur fundið áætlun og verð á <a href="http://www.flugfelag.is/main/view.jsp?branch=2609">http://www.flugfelag.is/main/view.jsp?branch=2609</a> Tékkaðu líka á <a href="http://www.greenland-guide.gl/">http://www.greenland-guide.gl/</a> og <a href="http://www.greenland-guide.gl/gla/">Air Greenland</a> Það er líka möguleiki fyrir ykkur að fara gegnum Köben en tekur lengri tíma og...

Re: Nauðganir

í Djammið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Alveg sammála.

Re: Nauðganir

í Djammið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Bjóða uppá eða ekki, þá er það alveg satt að það er ýmislegt sem stelpur geta gert til að passa sig betur, t.d. verða ekki ofurölvi, halda hópinn, passa drykkina sína og þiggja aldrei sopa eða drykki hjá öðrum. Líka vera ekki einar á ferli á fáförnum stöðum. Auðvitað ættu stelpur að geta gert þetta allt en maður ætti líka að geta skilið bílinn sinn eftir í gangi fyrir utan sjoppur eða húsið sitt ólæst án þess að neinu sé stolið en raunveruleikinn er bara ekki þannig.

Re: Skaut af sér hægra eistað

í Sorp fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það var líka einhver gaur sem kærði kaffihús vegna þess að hann fór á klósettið þar og setan var brotin og einhvern veginn lenti tippið á honum undir setunni og klemmdist.

Re: Börn á leikskólum

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég var einu sinni í sláttuhópi hjá borginni og við fórum meðal annars á milli leikskóla að slá. Einn leikskólinn var greinilega eitthvað skrítinn. Einn krakkinn var hágrátandi og hafði einhvern veginn fengið þá hugmynd að mamma sín kæmi aldrei aftur og fóstrurnar gerðu ekkert til að hugga hann. Bara sátu í sólbaði og sögðu honum nánast að halda kjafti af og til. Það var ekki fyrr en allur sláttuhópurinn var farinn að horfa á sem þær fóru að skipta sér af honum. Annað skipti fór ég á sama...

Re: Kynlíf á meðgöngu

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Til eru karlmenn sem finnst óléttar konur mjög óaðlaðandi, jafnvel þó það sé þeirra eigin. Til eru karlmenn sem finnst ekkert meira æsandi en óléttar konur. Svo náttúrulega allt þar á milli.

Re: Meira um fangelsi

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Mér finnst þetta mjög einfalt mál. Hann braut af sér. Hann situr inni. Að vísu væri betra mál ef menn gætu afplánað strax en því miður þá eru biðlistar víðar en í heilbrigðiskerfinu. En samt.. eins og þeir segja í Ameríku.. “if you can't do the time, don't do the crime”. Hvort kærasta hans fer eitthvað illa út úr þessu kemur málinu ekkert við. Ef hann braut af sér áður en þau kynntust þá vissi hún væntanlega að hann ætti þetta yfir höfði sér.

Re: Leggjum niður fangelsin ! (um erfðasyndina)

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Fangelsin á Íslandi hljóta bara að vera mjög góð að þínu mati. Fangar fá t.d. ekki að fara á internetið. Bara þeir bestu fá að stunda nám. Þeir fá nú þegar versta mat sem til er. T.d. hringdi fyrrverandi fangi í Þjóðarsálina einu sinni þegar verið var að ræða þetta og sagðist hafa fengið matareitrun oftar en einu sinni meðan hann sat inni. Mér finnst hins vegar að fangelsin ættu að leggja meiri áherslu á endurhæfingu en refsingu. Ef einhver er fullkomlega siðblindur, þ.e. sér ekki að hann...

Re: Lesblindni og allt sem tengist því

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þegar ég var í barnaskóla voru allir sem áttu í miklum erfiðleikum með að lesa teknir út úr lestrartímum og settir í sérkennslu. Held að það hafi verið svona 4 í bekknum í allt.

Re: Hvað er ég að gera rangt?

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
En líka hafa það í huga að fyrir hvern einn sem verður milljónamæringur, þá eru ábyggilega svona 100 sem fara á hausinn.

Re: Frh

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Hann bara þóttist vanta eitthvað, þurfa að fara út eða vilja fara að leika. Svo þegar maður stóð upp, þá hljóp hann uppí sófann og lagði sig :)

Re: Óréttlæti

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég býst við að með átthagafjötrum sé hann að meina fólk sem á hús úti á landi sem það getur ekki selt eða fólkið sem erfði bóndabæinn eftir mömmu og pabba. Það þarf ansi mikinn drifkraft til að taka sig upp með börn og bú og flytja. Tala nú ekki um þegar fólk á ekki heldur vísa vinnu í bænum og þarf að skaffa sér húsnæði líka fyrir sig og sína sem er bæði erfitt að fá og rándýrt. Fólk er kannski að setja sig í stórskuldir við að redda húsnæði og flytja og er ekki einu sinni komið í vinnu á...

Re: Nauðganir

í Djammið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég hef alla vega aldrei heyrt um að fólk hafi fengið blásýru út í drykkina sína á skemmtistöðum. Þetta með áfengið, ja fólk sem er í glasi verður kannski kærulausara að passa glasið sitt og þiggja ekki drykki frá öðrum. Annars þarf oft ekki nema einn sopa. Það var talað við einhverja stelpu í útvarpinu sem var á þjóðhátíð og var að dansa og eitthvað. Hún var með flösku og setti hana frá sér. Tók hana svo og fékk sér sopa en þá var þetta ekki hennar flaska heldur búið að víxla henni fyrir...

Re: 10 sólarhringa kaf(ekki C/P)

í Sorp fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Hann hlýtur að fá skipt um kúta. Líklega er hægt að senda honum ofan í kókómjólk með röri eða eitthvað svoleiðis. Hins vegar væri gaman að vita hvernig hann ætlar á klósettið. Ekki sérlega geðslegt ef hann ætlar að gera allt í tankinn.

Re: Erlendir framhaldsskólar

í Skóli fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég myndi nú tékka á því fyrst hvort mamma og pabbi ætla að borga :) Annars er stúdentinn á Íslandi held ég svipaður og í öðrum Evrópulöndum en háskólakerfið er held ég eitthvað öðruvísi í Þýskalandi. Þú ættir alla vega að tékka á því hjá HÍ ef þú ferð í þennan skóla hvort þú fáir það metið sem stúdent ef þú vilt koma til baka. Þú getur líka spurt á http://www.ask.hi.is/ því þau hljóta að vita eitthvað um þetta þar.

Re: grimmd

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ef maðurinn er að hóta að skjóta ketti með riffli, þá ættirðu endilega að tala við lögguna. Þó hann hafi byssuleyfi, þá má hann samt ekki skjóta innanbæjar. Hann má náttúrulega heldur ekki skjóta ketti sem eitthvað fólk á. Þó þú getir ekkert sannað, þá er líklegt að löggan tali við hann ef hann hefur sagt þetta og hóti að taka af honum riffilinn og leyfið ef hann hagi sér ekki vel. Þeir vilja náttúrulega ekki að hann sé skjótandi út um allt í garðinum sínum og kannski skjóti óvart eitthvað...

Re: Frh

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Betri en hundurinn minn var. Hann plataði mann uppúr sófanum til að geta lagst í hann sjálfur ;)

Re: um hunda

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég er nú ekki svo viss um að ég sé sammála því að þeir hafi ekki samskiptahæfileika á við apa. Úlfar veiða í hópum og geta tekið niður stór dýr eins og vísunda ef þeim sýnist. Þeir eru heldur ekkert sérlega frjósamir, villihundar verða oft bara lóða einu sinni á ári og meðan kettirnir geta gotið allt að 5 sinnum á ári getur tík í mesta lagi tvisvar.

Re: aðskilnaðarfælni

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Búrið á að vera nógu stórt til að hundurinn geti snúið sér við og lagst niður eða staðið upp. Ekkert mál að hafa vatn þar inni. Meira að segja hægt að festa dolluna á hurðina á búrinu. Hins vegar þurfa dýr ekkert alltaf að hafa aðgang að fersku vatni. Það er meira að segja ráðlagt með hvolpa að gefa þeim bara vatn á vissum tímum til þess að það sé auðveldara að húsvenja þá.

Re: Varðandi barnabætur

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Vandamálið í mjög mörgum löndum er að það er ekkert lífeyrissjóðakerfi þannig að gamalt fólk er virkilega að lifa á sköttum þeirra sem eru yngri. Því færri sem eru að vinna að sjá fyrir öllu þessu fólki, því þyngri er skattbyrðin. Á Íslandi eru alla vega flestir að greiða í sjóði sem þeir koma til með að fá borgað úr þegar þeir komast sjálfir á aldur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok