Tuttugu og tveggja ára bandarískur karlmaður varð fyrir því óláni að skjóta af sér hægra eistað með 40 kalibera hálfsjálfvirkri skammbyssu í síðustu viku. Hann var staddur á bílastæði á dögunum ásamt félögum sínum og voru þeir að leita að tveimur mönnum sem höfðu gengið í skrokk á félögum þeirra fyrr um kvöldið. Þessi ólánsami maður hafði tekið skammbyssu sína með og hafði í huga að hræða mennina tvo svo um munar. Þegar ekkert bólaði á slagsmálahundunum ætluðu mennirnir að fara heim aftur og hinn óheppni ætlaði að stinga byssunni í buxnastrenginn sinn og keyra af stað. Ekki vildi betur til en svo að skot hljóp úr byssunni, tætti í sundur á honum punginn, særði Smáralindina og endaði í hægra læri hans. Vinir hans fóru með hann á spítalann og var hann svo í kjölfarið kærður fyrir ólöglegan vopnaburð.
Nú er hann ekki bara búinn að tapa byssunni, heldur öðru eistanu líka.
Og hvað kennir þetta okkur; Ekki fara í hefndarhug á bílastæði í Bandaríkjunum með 40 kalibera hlaðna skammbyssu og stinga henni í buxnastrenginn án þess að hugleiða afleiðingarnar……………eða eitthvað svoleiðis !