Í fyrsta lagi borgar verkamaðurinn ekki 38,54% í skatta vegna þess að hann fær persónuafslátt. Í öðru lagi, finnst þér eitthvað réttlæti í því ef ríki kvótaeigandinn fær VSK frí föt á krakkann sinn meðan barnlausi verkamaðurinn og öldruð móðir hans ganga í lörfum? Ég segi, hjálpum þeim sem þurfa á hjálp að halda. Hinir geta hjálpað sér sjálfir. P.S. ég er ekkert á móti því að kvótaseljendur greiði skatt af hagnaði en það hefði mátt byrja á því fyrir langa löngu.