Ég þoli ekki þegar fólk er vont við ketti. Það er einn hérna á svæðinu, sem þolir ekki að kettirnir í kring fari inn á lóðina á sér, svo hann skýtur þá með loftbyssu. Kisan okkar var svo hölt um daginn að hún gat ekki stigið í eina afturlöppina og við vorum að pæla hvað gæti hafa komið fyrir, þá kom litli bróðir minn og sagði að þessi maður hefði komið og spurt hvort við ættum þennan kött. Hann hefði verið að skjóta á hann með loftbyssu því hann væri að þvælast í garðinum sínum. :( :( Ég þoli ekki svona grimmd, það er búið að tala við hann en það þýðir ekkert, hann heldur því fram að kettirnir eiga bara að sveigja framhjá hans garði svo hann heldur áfram að skjóta og nú er kisi aftur orðinn haltur :( :(

kv.spotta