Lærðu að galdra Hér kemur smá kennsla fyrir þá sem vilja læra að galdra, ég mun taka þetta í nokkrum greinum, þar sem þetta er mjög mikið efni og ég hef ekki mikinn tíma fyrir þetta :

Áður en þú byrjar að fikta við að galdra þarftu að læra ýmislegt.
Þú verður að skilja hvernig heimurinn virkar og þekkja sjálfa/n þig bæði líkamlega og andlega.
Mikilvægt er að ef þú ætlar að gera þetta af alvöru að þú lesir allar þær bækur og efni sem þú kemst yfir um þessi mál.Því meiri þekkingu sem þú býrð yfir, því sterkari og máttugari verður þú. Aldrei hætta að læra, sama hversu mikið þú veist.

1. “Dream recall” lærðu að afturkalla og muna drauma.
Þetta er auðvelt að læra og þetta hjálpar þér líka að læra meira inn á sjálfa/n þig. Seinna leiðir þetta að sálförum eða “Astral projection/OOBE (out of body experiense)”
Dream recall verðuru að æfa í nokkra mánuði, og mikilvægt er að halda dagbók yfir árangurinn.

2. “Meditation” eða hugleiðsla.
Hana er mikilvægt að læra. Þú þarft að æfa þig í að tæma hugann, ef þú getur það ekki, þá nærðu aldrei árangri í göldrum.

3. “Protection” eða vörn.
Ef þú hefur ekki vörn á meðan þú framkvæmir athöfnina, þá geturðu dregið til þín ill öfl, sem þú ræður ekki við. Aldrei reyna að framkvæma galdur áður en þú hefur fengið vörn.

4. Þú verður að áhveða hvaða tegund af göldrum þú vilt helga þig. Þú getur valið á milli “witchcraft” eða “high magic”.
Witchcraft eru einfaldari og auðveldari galdrar, þeir innihalda meðal annars voodoo. High magic eru mikið máttugari en þeir eru líka mikið flóknari og erfiðari. Það getur tekið þig nokkur ár að læra og framkvæma þá.

5. “Astral Projection”
Á þessum tímapunkti er kominn tími til að læra sálfarir. Það getur tekið allt frá viku og uppí mörg ár að ná tökum á þeim. Sálfarir er þegar sálin yfirgefur líkama þinn á meðan þú sefur, flestir vita ekki að þeir upplifi sálfarir, en þegar búið er að ná tökum á þeim, er hægt að fara hvert sem hugurinn girnist og upplifa heiminn frá öðru sjónarhorni.

6. Þá er kominn tími til að læra athöfnina við að framkvæma galdurinn. Það er hægt að framkvæma hann á ótal vegu, ég mun bara kenna ykkur eina aðferð af mörgum.

7. Nú loksins er komið að aðalatriðinu. Að framkvæma galdurinn. Þú verður að byrja á einföldum galdri, s.s. peningagaldri eða “good luck” galdri.




Ég mun svo skrifa grein um hvert atriði fyrir sig, ég skal reyna að láta ekki líða langt á milli, en ég hef bara svo rosalega mikið að gera að ég get engu lofað…