Í kvöld fór fram skandall í íþróttasögu sýnar þegar misfórst að sýna frá bardaga Wladimir Klitschko og Jameel McCline sem átti að fara fram á eftir bardaga Floyd Mayweather og Jose Luis Castillo.

Ég var hálf sjokkeraður þegar þeir köttuðu á útsendinguna og finnst mér þetta fullkomlega ömurlegt þarsem að mér hafði hlakkað mun meira til að sjá Klitschko heldur en Mayweather nokkurntíman.
Ég er sterklega að íhuga að sniðganga sýn héðan í frá eftir þessu vonbrigði og hef nú þegar skrifað harðort bréf til að mótmæla og hvet ég ALLA sem ósáttir eru við þetta að senda þeim á sýn slíkt bréf eða hringja uppeftir til þess að mótmæla þessu og sýna að við látum ekki bjóða okkur svona sem borgandi áskrifendur!