Hvað er málið með fólk sem er stolt af því að svara fyrst? Fáið þið eitthvað út úr þessu? Af þeim þúsundum greina og korka hér á Huga hljóta að vera mörg hundruð manns sem hafa einhvern tímann svarað fyrst.

Eitt sinn sá ég greinasvar þar sem einhver sagðist vera fyrstur og skrifaði svo “btw” og kom með álit á greininni. Skiptir meira máli að svara fyrst/ur en að hafa eitthvað til síns mál?

Þið sem gerið þetta segið mér hvers vegna. <br><br>Ég hef talað.