Jæja ég fór á djammið núna um síðustu helgi! þetta byrjaði allt vel, ég var heima að sötra bjór og mála mig með vinkonu minni og allt í gúddí og síðan var okkur boðið í partý, ok everything going smoothly right! Þegar komið var í þetta partý blöstu við mér 6 stykki af 17 ára blindfullum gaurum að spila á kassagítar og syngja Britney Spears og klukkan var aðeins 11! ég hélt ég myndi deyja á staðnum (ég varla byrjuð að finna á mér)! Jæja mar hékk aðeins þar og reyndi að halda sér í stuði miðað við aðstæður síðan var skutlað mér og vinkonu minni niðrí bæ um 2 leytið og farið var á Nellys(btw ég er komin með ógeð af þeim stað) jújú ég fékk mér í glas á barnum og fór að dansa! þa´byrjuðu hörmungarna að dynja yfir mér…ég þurfti að pissa og fór á klósettið á leiðinni þangað kom einhver ógeðslegur Arabi og var að klípa eitthvað í rassinn á mér, ég strögglaði við að ýta honum í burtu og fór fegin að losna við hann inn á bað að pissa því þvagblaðran mín var að springa! þegar ég svo ætlaði að labba niðrá dansgólf aftur missteig ég mig og horfði á hælinn undan skónum fljúga einhvert út í buskann, ég fann hann, setti hann oní tösku og hélt áfram að dansa, ekkert mál ég reddaði mér þótt ég dansaði eins og slasaður kjúklingur :Þ síðan týndi ég honum seinna meir og viti menn, síminn minn var horfinn úr töskunni!!! How in da bíb could that have happened! af einhverjum ástæðum var ég á þessu skítapleisi ennþá að deyja úr pirringi og langaði að skjóta sjálfa mig en neiiii vinkona mín var að hustla og ég þurfti því að sitja á rassgatinu og passa sig að feiti, bólugrafni viðbjóðurinn sem sat við hliðina á manni myndi ekki reyna að gera fimmtugustu tilraunina til að reyna að fá mann heim með sér!!! Ég endaði síðan kl 8 um morguninn heima hjá frænku minni í rúminu hennar og vissi ekkert hvað ég var að gera þar og hvernig ég komst þangað en þetta var ógeðslegasta djamm sem ég hef upplifað ever og þetta var defenately í síðasta sinn sem ég gekk inn um dyrnar á Nellys!!! :/