Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Glöggt er gests augað

í Heimilið fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það eru líka trikk sem ég hef heyrt ef þú ert með opið hús, þá er gott að það sé heimilislegt, t.d. bökunarlykt (? um að henda homeblest í örbylgjuna ef þú nennir ekki að baka í alvöru) og kveikt á kertum.

Re: Stefna þjóðernissinna á Íslandi

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ekki veit ég hvort flugvallarskattarnir voru svona vondir en Flugleiðir hafa verið með einokun á innritun í Keflavík og hafa getað okrað á þeirri þjónustu sem önnur flugfélög hafa þurft að kaupa af þeim.

Re: Þurrt trýni?

í Hundar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ef hann étur og drekkur og hreyfir sig, þá myndi ég ekki hafa áhyggjur. Ef hann væri með hita þá væri hann slappur. Hins vegar svo þú fáir ekki móðursýkiskast ef þú mælir hann, þá er líkamshiti þeirra hærri en fólks, 38-39 gráður eins og segir á <a href="http://www.pethealthcare.net/html/body_orphaned_puppies.html">http://www.pethealthcare.net/html/body_orphaned_puppies.html</a

Re: Dalsmynni?

í Hundar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég held að það sé látið líta þannig út á heimasíðunni að dæturnar eigi Mánaskins og Gleðigjafa en þetta er náttúrulega allt sama fjölskyldan og býr á sama stað. Síðast þegar ég vissi voru bræðurnir með fiskvinnslufyrirtæki og hafi það ekki farið á hausinn, þá er fólkið sem er að vinna í hundunum hjónin + dæturnar tvær.

Re: Þurrt trýni?

í Hundar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það er stundum talið merki um að hundurinn sé lasinn en hundurinn minn var mjög oft með þurrt trýni þó hann væri ekki veikur, sérstaklega ef hann var nývaknaður og var ekkert búinn að sleikja það lengi.

Re: Vinna í útlöndum?

í Ferðalög fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Tékkaðu á <a href="http://www.vinnumalastofnun.is/EES/tenglar.html">http://www.vinnumalastofnun.is/EES/tenglar.html</a> Þeir eru með link sem heitir laus störf á EES svæðinu. Ég sé t.d. að það er laus vinna fyrir jarðarberjatínslumenn á Írlandi frá maí :)

Re: Megrun,.

í Heilsa fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Engin megrun virkar til lengdar nema breyta um lífsstíl. Hættu að borða nammi, sykur, fitu, salt og drekka gos. Drekktu mikið vatn og borðaðu ferskt grænmeti og ávexti og sem mest af ferskum mat sem þú eldar, ekki eitthvað tilbúið búðarusl sem þú veist ekki hvað er í. Ekki éta seint á kvöldin heldur mest á morgnana. Farðu svo að æfa, helst 6 daga vikunnar og best að gera það á morgnana ef þú getur. Finndu þér æfingafélaga til að fara með þér svo þú gefist síður upp eða byrjaðu á að fara á...

Re: Spurnig til allara huga:

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þú þarft að vera með fleiri stig á því tiltekna áhugamáli til að komast á ofurhugalistann. Ef þú t.d. ferð inn á eitthvað áhugamál og sérð á ofurhugalistanum að einhver er með (150) þá þýðir það að hann sé með 150 stig á því áhugamáli. Hins vegar geturðu smellt á nafnið hans og séð hvað hann er með mörg stig í heildina, væntanlega eitthvað fleiri. Þú getur líka séð á hvaða áhugamálum þú ert með stig með því að fara efst upp til hægri þar sem eru upplýsingar um notendanafnið þitt og hvað þú...

Re: BNA refsar Þýskalandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það var nú reyndar hvalur en ekki fiskur og ég hef ekki séð neinn lista yfir hvaða stórfyrirtæki voru þar á ferð. Ég hélt að það hefði verið stofnaður sjóður um þetta dæmi og síðan herjað á almenning að leggja í púkkið.

Re: BNA refsar Þýskalandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
BNA hefur vissulega mikið af umhverfisfasistum en hins vegar eru þeir alveg valdalausir. Það eru stórfyrirtækin sem fara með völdin og eiga sína þingmenn sem þau styrkja duglega kosningasjóðina hjá. Fyrirtækin geta síðan leitað til þingmanna sinna þegar eru vond umhverfislög í bígerð sem gætu skemmt fyrir þeim viðskiptin.

Re: Stigin mín-Asnalegi hugi

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Bara þér að kenna fyrir að vera bannaður. Þakkaðu bara fyrir að byrja ekki aftur á núlli. Eða verra, í mínus :)

Re: Tarsan, í eða úr tísku?

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já, t.d. var Human League söngvarinn ekkert smá kvenlegur, málaður með sítt hár. Var það ekki um '84 að þeir komu til Íslands? Líklega er þetta bara einhver svipuð bylgja eða á ekki tískan að endurtaka sig á ca. 20 ára fresti?

Re: Stefna þjóðernissinna á Íslandi

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
“Búsetuleyfi er s.s. með öðrum orðum ótímabundið dvararleyfi (landvistarleyfi) eins og ég hélt.” Já, þegar ég tala um búsetuleyfi eða búseturétt, hvort sem er í Kanada eða á Íslandi, þá er ég að tala um ótímabundið landvistarleyfi því það er kallað þetta í nýju útlendingalögunum. Reyndar fylgir líka óbundið atvinnuleyfi með þessu Kanadíska en það heitir “permanent resident” hér úti.

Re: Einhverjar ráðleggingar???

í Rómantík fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ekki flýta þér að leita að nýju sambandi bara til að vera ekki einn. Ég hef nefnilega séð vini mína gera þessi mistök. Bara stökkva á næstu og svo enda þeir bara í molum með allt of mörg mislukkuð sambönd á bakinu. Lærðu bara að njóta þess að vera einn og þá detturðu ábyggilega niður á einhverja ferlega góða.

Re: Stefna þjóðernissinna á Íslandi

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já, síðast þegar ég gáði, þá var það þannig en það er kallað búsetuleyfi í nýju lögunum. Útlendingur þarf að hafa dvalist á Íslandi í 3 ár til að geta fengið búsetuleyfi. Þetta er 15. gr. í lögum nr. 96 frá 2002.

Re: Stefna þjóðernissinna á Íslandi

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Reyndar þá vilja Kanadamenn fá innflytjendur vegna þess að fólksfjölgun vegna þeirra er það sem ber efnahagskerfið uppi. Það eina sem almenningur hefur áhyggjur af eru flóttamenn. Kanadamenn hafa mjög frjálslegar reglur varðandi flóttamenn og það liggur við að það sé nóg að segja að þú sért flóttamaður þegar þú mætir, þá er þér sleppt út í þjóðfélagið og síðan líða 2-3 ár meðan verið er að taka þitt mál fyrir. Á meðan ertu náttúrulega búinn að stofna fjölskyldu og ekki hægt að reka þig úr...

Re: Er Bush að missa það?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þú getur vonandi alla vega bent á Bandaríkin á heimskorti og það er víst meira en margir Bandaríkjamenn geta.

Re: Bandaríkin - Ameríka

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég held að það skipti ekki öllu máli hvort við köllum þetta ríki eða fylki á Íslensku en það er alveg rétt að Kanadamenn hafa hálfgerða minnimáttarkennd að búa við hliðina á þessum risa. Kanadískur rithöfundur líkti Kanada við eiginkonu Bandaríkjanna sem gargar “ég hata þig, þú tekur aldrei eftir mér”. Þó Kanada hafi meira landrými en Bandaríkin þá hafa þeir aðeins 1/10 af íbúafjölda þeirra. Þeir versla mjög mikið við Bandaríkin og t.d. þegar þeir breyttu yfir í metrakerfið hótuðu...

Re: Það sem þér viljið....

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég segi nú bara að mér finnst þú alveg rosalega óheppin. Hins vegar geturðu ekki treyst á það að allir séu kristnir og ca. 90% þeirra sem þykjast vera kristnir hafa ekki einu sinni sérlega kristilegt hugarfar. Þess vegna er miklu betra að fara eftir mottóinu úr Sódómu Reykjavík, “þú átt ekki að gera eitthvað fyrir einhvern sem myndi ekki gera það sama fyrir þig”. Þess vegna áttu ekki að gefa eitthvað dót til ókunnugra eða ef þú gerir það, þá gera þér grein fyrir því að það er ekkert víst að...

Re: Bandaríkin - Ameríka

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Bandaríkjamenn halda að Bandaríkin séu heimurinn allur þannig að það er ekkert skrítið að þeir hafi tekið sér nafnið Ameríka. Ég bý í Kanada og þar er þetta ekkert vandamál. Yfirleitt er talað um landið sem “the US” eða “the states” en fólkið sem “Americans”. Þetta er bara orðalag og fólk er vant þessu. Þú gleymir líka BNA í upptalningunni þinni. Mér finnst sú skammstöfun fínt nafn fyrir landið og þess vegna fólkið líka. Bara BNA-maður ef þú nennir ekki að skrifa Bandaríkjamaður.

Re: Framburður

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég hef heyrt að Þjóðverjar segi aurovisjon en ég segi nú bara júróvisjon

Re: Hvernig síma ætti ég að fá mér

í Farsímar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég á Motorola síma sem hefur reynst mér mjög vel. Ég held að þetta sé líka mjög misjafnt eftir týpum. Líka hjá Nokia. Gömlu 5110 og 6110 voru t.d. mjög góðir. Annars geturðu spurt þar sem þeir eru seldir eða á verkstæðum hvernig þessi T68i hefur reynst. Þeir græða ábyggilega ekkert meira á að selja þér hann en einhvern annan síma.

Re: Svefn ?

í Heilsa fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ef vandamálið hjá þér er að þú slekkur á klukkunni og sofnar aftur, jafnvel án þess að muna eftir því, þá er ráðið að láta hana það langt frá rúminu að þú verðir að standa uppúr rúminu til að slökkva á henni. Ef vandamálið er að þú hreinlega vaknar ekki við klukkuna skaltu fá þér gamaldags háværa klukku með bjöllum á og til að gera hana enn háværari geturðu notað þessa aðferð. Settu klukkuna í málmskál ásamt með smápeningum, lyklum ofl. Settu málmskálina á lítið tréborð til að fá meiri...

Re: BNA refsar Þýskalandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Auðvitað eiga ríki að standa við sína sannfæringu en ekki bara hlaupa á eftir þeim sem er sterkastur. Ef BNA ætla að fara að refsa þeim fyrir það, öðrum til viðvörunar, þá er mjög líklegt að það snúist í höndunum á þeim og þeir standi eftir einangraðir.

Re: Úr sveit í borg.

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Myndlistarskólinn í Reykjavík er með námskeið fyrir börn og svo eru til myndlistarskólar alla vega í Garðabæ og Kópavogi líka. Í sambandi við almenna skóla, þá ættirðu kannski að spyrja að því líka inni á skólaáhugamálinu og sjá hvað krakkarnir segja. Þú getur líka séð einkunnir á samræmdum eftir skólum á http://www.namsmat.is/samrpr/medaltol.html
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok