Guðlegar Leiðbeiningar Hérna á eftir koma guðlegar leiðbeiningar um hvernig refsa skal börnum sínum á sannkristinn hátt.

Eflaust útskýrir þetta margt um hvernig geðsjúkt fólk hagar sér í dag, en þetta er tekið af hinni ótrúlega mögnuðu síðu www.landoverbaptist.org en þar er td að finna link á fjárveitingu sem Bush Jr hefur gefið þessum söfnuði og er hann á www.whitehouse.com þannig að maður verður að velta fyrir sér hvað ætli sé að þessu fólki!!!!


En allavega, njótið vel og ég vona að þetta gagnist ykkur í að ala upp börnin ykkar.

1. Til að byrja með, þá verður sannkristið foreldri að skilja það að barn þeirra komi aldrei til að læra neina lexíu nema það sé barið á berann bossann þar til að eftir sitji brennimerkt far krossins vel sjáanlegt á báðum rasskinnum. Ef barnið er í fötum þá sjást sennilega engin ummerki og barnið kemur sennilega til með að hlægja í laumi og syndga á meðan að verið er að rasskella það ef það er í buxum. Barn sem getur sest niður eftir barsmíðarnar á eftir að hugsa með sér að það hafi náð að plata sig útúr refsingunum með þessum hætti og kemur sennilega til með að snúa sér að mun grófari syndum. Barn á ekki að geta sest niður í 3 daga án þess að vera með klakapoka á rassinum til að refsingin geti talist fullnægjandi, annars hefuru brugðist sem sannkristið foreldri. Rasskellur á að hafa varanleg sálfræðileg áhrif sem situr í barninu fram að fullorðins árum.

2. Notaðu þungann hlut, reglustika er of létt og beltissylgja er mjög líkleg til að skilja eftir blóðugt sár og vekja grunsemdir hjá frjálshyggjustefnu kennurum, ef þú ert nógu kærulaus til að leyfa barninu þínu til að ganga í almennings skóla. Við mælum með “King James 1611” Biblíu sem er innbundin í ekta nautsleðri.

3. Finndu þér þæginlegann stað til að sitja á, kallaðu á barnið þitt eins og ekkert sé að og biddu það að setjast þér á kjöltu. Við mælum með að þú brosir og/eða kinkar kolli til barnsins með góðlegum hætti. Ef þú átt dóttir geturu sagt td “Komdu hérna og sestu í fangið á pabba þínum, mig langar að tala við litla engilin minn í smástund”, ef þú átt son getur sagt td “hey laxi, hvernig hefur fótboltastjarnan hans pabba síns það í dag, komdu og sestu hérna í fangið á pabba þínum og spjöllum aðeins saman um Jesú Krist”.

4. Um leið og barnið þitt er sest í fangið á þér skaltu grípa fast um handleggin á því svo það komist ekki í burtu og snögglega snúa því á magann og yfir hnén á þér. Ef barnið streitist á móti skaltu lemja það létt á höfuðið og segja honum að þegja og útskýra fyrir honum að þetta sé bara minniháttar miðað við það sem Jesú kemur til með að gera honum, helvítis auminginn sem það sé.

5. Á þessum tímapunkti má vera að barnið fari að haga sér eins og skratti og fari að öskra og láta öllum íllum látum. Vertu viðbúinn þessu og hafðu góðann íþróttasokk í rassvasanum og settu hann uppí munnin á barninu til að þagga niður í því, hafðu ekki áhyggjur því náttúran sér um að barnið andi í gegnum nefið og kafnar því ekki.

6. Hafðu Biblíuna tilbúna, lyftu henni hátt upp yfir höfuð með annari hendi og haltu barninu vel föstu með hinni.

7. Dragðu niður buxur barnsins þannig að rassinn berist, vertu viss að báðar rasskinnar séu vel sjáanlegar.

8. Til að vera viss um að barsmíðarnar skili sem mestum árangri skaltu segja hvert orð á milli barsmíðanna td ÞÚ (SKELL) SKALT (SKELL) EKKI (SKELL) GERA (SKELL) ÞETTA (SKELL) AFTUR (SKELL).

9. Vertu viss um að nefna nafn Jesú Krists alltaf reglulega á meðan þú lest þeim pistilinn.

10. Eftir um það bil klukkutíma þegar barnið er orðið rólegt, skaltu lesa fyrir það úr sömu Biblíu og þú lamdir það með nokkur vers um helvíti (við mælum með Matteus 13:41-42) á meðan það situr í fanginu á þér. Minntu barnið á að refsingin sem það hlaut í dag er ekkert miðað við þá refsingu sem það fær í helvíti þar sem Jesú persónulega brennir og pyntar öll litlu börnin sem hlýddu ekki pabba sínum.


Eftir svona meðferð ætti það að vera nokkuð öruggt að barnið þitt kemur til með að verða fyrirmyndar sannkristin manneskja um aldur og ævi.

Takk Fyri
ibbets úber alles!!!