McFarlane ekki enn löglegur og Skotinn ekki til KR Errol McFarlane verður að örugglega ekki í leikmannahópi Fylkis þegar það sækir Breiðablik heim á Íslandsmótinu í knattspyrnu í kvöld. Errol er frá Trinidad og Tobago. Árbæingar áttu von á leikheimild fyrir hann frá FIFA en hún barst ekki. McFarlane hefur verið í herbúðum Fylkismanna í rúman mánuð en ekki getað spilað með liðinu þar sem félag hans í Líbanon, Nejmeh, hefur stöðugt neitað að samþykkja félagaskipti hans. Von er á heimild frá FIFA á morgun (mánudag).



Ekki náðust samningar milli KR og Andy Roddie og leikur Skotinn því ekki með KR í sumar.