Skoti til reynslu hjá KR Fram kemur á heimasíðu KR að skotinn sé til reynslu hjá KR þessa dagana. Hann heitir Andy Roddie og kom til landsins í dag og fór beint á sína fyrstu æfingu. Roddie, sem leikur ýmist á miðjunni eða vinstri kanti, hefur leikið með félögum í Skotlandi, Svíþjóð og Hong Kong. Hann hóf feril sinn hjá Aberdeen og var það Alex Ferguson sem fékk hann til félagsins. Árið 1994 fór hann til Motherwell, þaðan til Ljungskile í Svíþjóð árið 1997, hann lék með St Mirren veturinn 1997-98 en hefur leikið með Yee Hope FC í Hong Kong síðan í október 1998