Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: þarf hjálp :/

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Æ enga svona vitleysu. Epli auka ekkert brennsluna og eru ekkert betri eða verri milli máli en aðrir ávextir. Hungurtilfinningin sem sumir fá eftir að borða epli hefur ekkert með brennsluna að gera.

Re: Armbeyjur á hnúunum?

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Þær styrkja úlnliðina meira og svo handarvöðvana eða hnefann sjálfann sem getur verið gagnlegt í karate eða boxi. Hreyfingin er örlítið lengri en í venjulegri armbeygju sem er líka gagnlegt.

Re: Prótein

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Það sem þú ert (sennilega) að vísa til eru rannsóknir sem sýna að hátt próteinhlutfall í fæðu dregur úr matarlyst og hjálpar fólki því að grennast. Það er útaf því sem Atkins kúrinn og svipaðir virka, ekki útaf neinum sérstökum áhrifum á brennslu eða fituvinnslu líkamans eins og forsvarsmenn hans héldu fram.

Re: Wtf???

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Talaðu við lækni. Hugi er ágætur staður, en ekki til þess að fá læknisfræðilegar ráðleggingar.

Re: Lyftingarfélagi?

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég hef aldrei haft æfingafélaga. Það kemur að vísu dálítið niður á bekkpressunni (sem er eina æfingin þar sem félaga er þörf) en það er gott að öðru leyti að vera einn og öðrum óháður. Ef menn peppa hvorn annan upp eru æfingafélagar til bóta. Mér sýnist raunin vera öfug með mörg slík pör (flest?), þau draga úr æfingareglusemi vegna þess að ef annar mætir ekki mætir hinn ekki heldur. Í flestum betri stöðvum er til öryggisgrind (“power rack”) en inn í hana má setja bekkinn og still hæðina rétt...

Re: Prógram?

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Lestu þetta: Split Routines: Are They the Death of Productive Training eftir Kurt J. Wilkens.

Re: Prótein

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Já. En fyrir algeran byrjenda eins og þig skipta aðrir þættir í þjálfun og mataræði miklu, miklu miklu meira máli en nákvæmlega hvað og hvenær þú étur eða drekkur fyrir eða eftir æfingu. Við erum að tala um fullkominn sparðatíning hérna.

Re: Prótein

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Það eru rannsóknir sem benda til þess að það auki árangur og vöðvavöxt að hafa prótein (og smá sykur) tilbúið í blóðinu ca klst. fyrir og eftir æfingu. Magnið sem þarf er í rauninni mjög lítið og svarar ca til þess að drekka 1-2 mjólkurglös fyrir og eftir æfingu eða eina kókómjólk.

Re: Prógram?

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég setti upp drög að prógrammi í Prótein þræðinum að neðan sem ég tel betra en tækjabrjálæðið sem líkamsræktarstöðvarnar ota að manni.

Re: Prótein

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ef þú gerir fleiri og fleiri armbeygjur þá eykst þol vöðvanna sem þú notar en ekki stærð þeirra eða styrkur að neinu marki. Það er enginn hagur í því að pína hverja æfingu þangað til maður getur ekki meir. Það sem ég skrifaði að ofan er ekki prógramm, en grunnhugmynd að því sem prógramm þarf að hafa. Fyrir íþróttamenn tel ég alveg nóg að lyfta 2svar í viku og taka þá allan líkamann í einu. T.d. Hnébeygja Réttstöðulyfta Bekkpressa eða Standandi pressa Niðurtog eða Róður Magaæfing 2-4 sett af...

Re: Prótein

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég mæli með því að nota frjáls lóð og samsettar æfingar, þ.e. æfingar sem æfa fleiri en einn vöðva í einu. Þannig getur prógrammið verið miklu einfaldara og styttra en þegar vélar eru notaðar. Einnig þjálfa frjáls lóð miklu betur litlu hjálparvöðvana sem gefa stöðugleika, jafnvægi og rétta stefnu. Íþróttamenn ættu alltaf að nota lóð, ekki vélar. Svo eru lóð miklu ódýrari og fjölhæfari en vélarnar, sem flestar eru bara fyrir 1-2 æfingar. Það eru 4 grunnhreyfingar sem þarf að æfa: 1 - Ýta með...

Re: Prótein

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Magaæfingar og armbeygjur nægja ekki til að byggja upp vöðva. Í fyrsta lagi þjálfa þessar æfingar aðeins mjög lítinn hluta af vöðvum líkamans. Í öðru lagi, ef þú getur meira en ca 12-15 endurtekningar af æfingu, þá eykur æfingin hvorki styrk né vöðvastærð, aðeins úthald. Ég mæli með vel samsettu lyftingaprógrammi og miklu magni af hollum mat ef þú vilt “ ná sem mestum vöðvum á litlum tíma.”

Re: Hasberur

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Harðsperrur eru slit í vöðvaþráðum, ekki smáæðum, en þær fara ekkert illa með líkamann frekar en önnur áhrif þjálfunar. Líkaminn gerir einfaldlega við skemmdirnar og gerir vöðvann sterkari en áður. Harðsperrur eru hvorki slæmar né góðar nema að því leyti að ef þær eru of miklar geta þær hindrað æfingar.

Re: Líkamsræktarstöðvar

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Sennilega vegna þess að yngri krökkum er ekki treystandi til að haga sér almennilega og trufla ekki aðra eða slasa sig.

Re: Eyðileggja vöðvana?

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Allur líkaminn (nema hluti af miðtaugakerfinu) endurnýjar sig alla æfi. Það gerist hins vegar smátt og smátt hægar, en stoppar ekkert allt í einu við vissan aldur. Vöðvar eru sko alls ekkert “bara blóð”, en vissulega halda þeir áfram að endurnýjast. Ég hef bætt á mig verulegum vöðvum eftir fertugt og ég veit að svo er um fleiri.

Re: Hasberur

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Þær heita “harðsperrur”, ekki hasberur. Af hverju viltu fá þær? Þær benda einungis til þess að þú sért óvanur að gera æfinguna sem um ræðir. Um leið og líkaminn venst æfingunni hættirðu að fá harðsperrur af henni. Þær benda ekki til þess að æfingin hafi verið betri (reyndar ekki verri heldur). Hættu að hafa áhyggjur af þessu.

Re: mænuhimnubólga

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Þetta er væntanlega sami sjúkdómur og heilahimnubólga, en þá í mænu. Þetta eru lífshættulegur sjúkdómar sem stafa af bakteríu- eða veirusýkingum í miðtaugakerfi, heila eða mænu. Ég man ekki hvað amaði af stelpunni í umræddri bók, en heilahimnubólga heitir meningitis á ensku.

Re: Eyðileggja vöðvana?

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
“Of mikið”? Já, ef þú lyftir “of mikið” þá er það að sjálfsögðu of mikið. En það er ekki málið er það? Allir þurfa að læra að reyna hæfilega á sig til að bæta heilsu sína, styrk, úthald, lipurð, snerpu o.s.frv. Vissulega er hægt að meiðast á æfingum. Ef þú gerir æfingar rangt eða tekur þyngdir sem þú ræður ekki við þá geturðu skaddað þig. Þar skiptir ekki máli hvort þú ert að pína þig í 15 reps eða 3. Rangt framkvæmdar æfingar eru hættulegar, punktur. Unglingar og krakkar, geta haft mjög...

Re: Eyðileggja vöðvana?

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Nei, það er engin hætta á því að þú eyðileggir vöðvana. Þú verður bara sterkari og í betra formi en gengur og gerist þegar þú verður 20 ára. Það er heldur ekki nauðsynlegt að vera hættur að stækka til að hafa gagn af lyftingaþjálfun. Það er heldur ekki nauðsynlegt að halda sig við 15 endurtekningar eða fleiri. Færri og þyngra eru ágætar í bland. Já, meira að segja 3 endurtekningar. Það er meira segja ekki nauðsynlegt að skipta líkamanum í hluta á æfingum nema maður vilji af einhverjum...

Re: Kaloríur

í Heilsa fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Það er rosalega misjafnt en má sirka reikna með 1500-2500 hitaeiningum á dag fyrir konur og 2000-3000 fyrir karlmenn, en það miðast við hóflega hreyfingu og enga raunverulega líkamsrækt eða íþróttaiðkun. Ég hef rekist á þessa formúlu fyrir hvíldarefnaskiptahraða (engin hreyfing): Karlar: 66 + (kg*13.7) + (sm*5) - (aldur*6.8) Konur: 655 + (kg*9.6) + (sm*1.7) - (aldur*4.7) http://www.virtualfitnesstrainer.com/cooltools/What_is_Your_Resting_Metabolic_Rate.htm en þetta er svosem ekkert miklu...

Re: vírus

í Heilsa fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þér er svosem alveg óhætt þannig að fara í vinnuna af þú treystir þér til. Þetta eru bara óþægindi, ekkert alvarlegt. Annars er ég ekki læknir (að vísu líffræðingur svo ég veit smá um bakteríur og vírusa). Mikilvægt er að drekka mikið vatn og fylgjast með því að þú sért ekki að fá aukabakteríusýkingar ofan í vírusinn, en það er hættulegra.

Re: vírus

í Heilsa fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Já og svoleiðis vírus hefur verið að ganga að undanförnu. Ekkert að gera nema bíða eftir að þetta líði hjá eftir 3-5 daga. Og miklum mun hættuminna en bakteríusýking (Streptococcus) en ef þú værir með hana fengirðu hita og þyrftir fúkkalyf.

Re: Hvað borðuðuð þið í dag?

í Heilsa fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ef þig langar til að þyngjast skiptir ekki mestu máli “hvað” þú borðar, heldur hversu mikið. Þú þarft að borða nægilegt prótein, en þó ekki eins mikið og sumir halda. 2g á kíló á dag er meira en nóg. Þú þarft sem sé að borða meira en þú brennir. Ef þú vilt að þyngingin sé í formi vöðva en ekki fitu þarftu að lyfta. Hafðu samband ef þú vilt ráðleggingar varðandi það.

Re: ónæmur?

í Heilsa fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Nei, maður getur ekki orðið ónæmur fyrir pensillíni. Hins vegar geta bakteríurnar sem pensillíninu er beint gegn orðið ónæmar fyrir því. Það gerist oft og er orðið stórvandamál.

Re: Sólböð?

í Heilsa fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þetta er rangt hjá þér. Skoðaðu greinina í Læknablaðinu sem ég linkaði í. Aukin krabbameinshætta af völdum sólbaða er raunveruleg og alls ekki spurning um öfgakennda sóldýrkun í 50 ár. Það þekki ég frá fleirum en einum í minni fjölskyldu sem eru stálheppnir að vera enn á lífi. Þetta með diet kókið hins vegar var einfaldlega röng túlkun á tölfræði. Meint aukning á tíðni krabbameina var ekki tölfræðilega marktæk. Á þessu tvennu er stór munur eins og ég sagði.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok