Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Hollt nesti

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Skyrdrykkirnir frá MS eru “forblandaðir” próteindrykkir og mjög góðir á bragðið. Mæli með þeim. Eða bara mjólk.

Re: Grein 2. Fyrir lengra komna í uppbyggingu vöðva.

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Jæja. Eins og ég sagði, þá er ég búinn að bæta á mig sirka 15 kílóum af vöðvum á 2 árum og grennast á sama tíma og var í þokkalegri þjálfun fyrir (sund) svo þetta er ekki gagnslaust prógramm fyrir vöðvaaukningu. Verð ekki var við áberandi ósamræmi heldur en það er kannski frekar erfðaefni foreldra minna að þakka en þjálfuninni. Þó er ég helst á því að sjáanlegir vöðvar séu heldur meiri ofantil. Ég þarf kannski að auka við hnébeygjurnar. En já, prógrammið mitt miðast frekar við starfræna...

Re: Grein 2. Fyrir lengra komna í uppbyggingu vöðva.

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Athugasemd: Ég gerði smámistök þarna. Það er laugardags/sunnudagsæfingin sem má sleppa, ekki fimmtudags/föstudagsæfingin.

Re: Grein 2. Fyrir lengra komna í uppbyggingu vöðva.

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Það þarf ekki 3 æfingar til að æfa triceppinn. Það er bábilja. Það eru margar slíkar bábiljur í vaxtarrækt, en ég hef engan áhuga á henni, aðeins á starfrænni þjálfun. Einstaka vöðva þarf reyndar að taka þannig. Trapezius virkar í þrjár áttir en þetta prógramm tekur á honum í allar 3. Í þessu prógrammi er líka rúm fyrir aukaæfingar td tricep ef þörf er á. Þetta prógramm er ekki ætlað fyrir vaxtarrækt þó það henti reyndar mjög vel sem grunnprógramm fyrir vaxtarrækt. Það er ætlað fyrir...

Re: Grein 2. Fyrir lengra komna í uppbyggingu vöðva.

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þess meiri ástæða til að æfa mest stóru samsettu (compound) lyfturnar, ekki eins vöðva (isolation) lyftur.

Re: Bak

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Víst dugar það alveg.

Re: Grein 2. Fyrir lengra komna í uppbyggingu vöðva.

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ágæt grein hjá þér, rfm. Takk. Ég vil líka benda á aðferð fyrir lengra komna sem er einfaldari og meira miðuð við kraftlyftingar og aðrar íþróttir en vaxtarrækt. Þetta prógramm er miðað við að viðkomandi hafi keyrt í 6-12 mánuði eða svo á prógramminu sem ég stakk upp á í svari mínu við grein rfm, Grein 1. Byrjendur í uppbyggingu vöðva. Fyrsta árið er best að æfa bæði hnébeygju og réttstöðulyftu á hverri æfingu. Ef tekin eru 3-5 sett 2-3svar í viku eru harðsperrur í lágmarki, miklu minni en...

Re: Grein 1. Byrjendur í uppbyggingu vöðva.

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þakka þér fyrir góða grein, rfm. Bara til að fólk hafi annað sjónarmið, þá ætla ég að leggja til allt öðruvísi og mun einfaldara prógramm sem ég tel fyllilega jafn gott. Allir dagar eru eins (fyrsta árið) og lyfta má 2-3 sinnum í viku, þó alltaf með amk 2 sólarhringa millibili. T.d. er heppilegt að æfa Mán-Mið-Fös. 3 sett eru gerð af hverri æfingu, 5-10 endurtekningar. Byrjað er á 2 settum í upphafi. Nota skal mjög léttar þyngdir til að byrja með og bæta við á hverri æfingu þangað til þær...

Re: Bak

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það þarf nú ekki að vera “massaður” til að gera neina af þessum æfingum, en vissulega þarf maður að vera nokkuð sterkur (eða mjög léttur) til að geta gert upphífingar. Málið vandast ef maður hefur ekki aðgang að lóðum og tækjum, en þú getur gert réttstöðulyftu með innkaupapokum eða bókakassa. Bakfetta (superman) er mjög góð mjóbaksæfing en tæplega nógu erfið fyrir vant fólk. Einnig er mjög góð almenn bakæfing róður með annari hendi með handlóði (eða innkaupapoka). Þjálfar mikið til sömu...

Re: Bak

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Upphífing er betri (þjálfar fleiri vöðva) en það eru ekki allir sem ná henni. Það er gott að vinna sig upp í niðurtog með líkamsþyngd áður en skipt er yfir í upphífingar. Kreatín er eina fæðubótarefnið sem ég nota.

Re: Vöðvastyrking.

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
World Class er ágæt stöð en það eru margar aðrar jafngóðar eða betri. Til hvers þarf hann einkaþjálfara? Það er mjög dýrt. Vissulega gagnast það þeim sem hafa lítinn sem engan sjálfsaga en það er hægt að ná prýðilegum árangri án þeirra. Margir einkaþjálfarar vita ekkert. Fæðubótarefni eru svosem ágæt fyrir sinn part, en aftur algerlega ónauðsynleg og margir ná ágætum árangri án þeirra.

Re: Bak

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hvaða æfingar eru góðar fyrir bakvöðva?Réttstöðulyfta er besta æfingin fyrir neðra og miðbak, aftari læri og rass, spretti og stökk svo og almenna heildarstyrkingu líkamans. Þjálfar stærri hluta líkamans í einu en nokkur önnur æfing. Ýmiss konar togæfingar eru svo góðar fyrir efra bakið. Þar má nefna t.d. upphífingar, niðurtog og sitjandi róður. Að lokum má nefna trapezius vöðvana sem ná frá hálsi að öxlum og niður á bak, en bestu æfingarnar fyrir þá eru Ólympískar lyftur eða afbrigði af...

Re: Vöðvastyrking.

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Lestu þetta sem ég skrifaði einhvern tíma: http://www.hugi.is/heilsa/threads.php?page=view&contentId=2286537#item2287303

Re: Betra form

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Við þessari spurningu eru, eins og kannski alltaf, tvö svör. Eitt einfalt og stutt, hitt langt og flókið. Einfalda svarið: Já. Flókna svarið: “Betra form” er afstætt hugtak og afar mismunandi eftir einstaklingum, löngunum þeirra, kröfum og eftir því hvaða íþrótt þeir leggja stund á. “Form” (“fitness”) hefur marga þætti, 16 skv. talningu Dr. Fred Hatfield sem er einn virtasti þjálfari veraldar. Styrk, þol, sprengikraft, streituþol og fleira og fleira og fleira. Þjálfun þín og kröfur þurfa að...

Re: Lyftingar - Heimsmet

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þetta er nokkuð örugglega viðurkennt IPF mót. Hins vegar mundi IPF ekki viðurkenna heimsmet sem væri sett þar. Þau þurfa að vera sett á lyfjaprófuðu móti en hér á landi er ekki lyfjaprófað. Auk þess þarf að vera viðstaddur ákveðinn fjöldi dómara með alþjóðleg réttindi. Met sett hér á landi fást almennt viðurkennt sem Norðurlandamet en ekki sem Evrópu- eða heimsmet þó þau séu hærri. T.d. voru ýmsar tölur á Íslandsmótinu í apríl talsvert hærri en gildandi Evrópumet og réttstöðulyftan hans...

Re: Fallegir magavöðvar! :D

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þú ert of klár stúlka til að segja svona vitleysu. Hættu nú.

Re: Fallegir magavöðvar! :D

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Vissulega er þetta allt satt hjá þér. En ég lýg samt ekki að fólki. Nóg er af hjátrúnni og hindurvitninni samt.

Re: Að sjokkera vöðvana

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já, en það er svo flókið að það ógjörningur að reikna það út. Miklu betra að éta bara eins og maður getur og losa sig við aukakílóin seinna.

Re: Lyftingar - Heimsmet

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Metið er gilt í WPC sambandinu, ekki í IPF sem er sambandið sem Kraftlyftingasamband Íslands er aðili að. Það er margt fleira en bara lyfjapróf sem greinir á milli. WPC reglur eru mun frjálslegri bæði hvað varðar stíl og búnað. Hnébeygjur og bekkpressur í WPC (og WPO og IPA sem hafa svipaðar reglur) eru gjarnan hátt í 100 kílóum meiri en í IPF vegna öflugri búnaðar og frjálslegri reglna. Það er miklu minni munur í réttstöðulyftunni þar sem reglur eru einfaldastar og búnaðurinn hjálpar lítið....

Re: Lyftingar - Heimsmet

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei. Benedikt á vissulega bróður sem heitir Magnús Magnússon og keppir í aflraunum en það er ekki hinn eini sanni Magnús Ver Magnússon.

Re: Fallegir magavöðvar! :D

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hmmm. Ég hef almennt séð trú á því að segja sannleikann, ekki eitthvert uppskáldað bull. Tala nú ekki um á svona spjallvef þar sem (upplogin) svör mín gætu staðið mér til háðungar um aldur og ævi. Ég hafði ekki hugmynd um að spyrjandinn væri táningsstúlka. Og þó svo væri færi ég ekkert frekar að ljúga að henni einhverju bulli. Ert þú ekki táningsstúlka líka? Á ég að ljúga að þér svo þú verðir “sáttari við sjálfa þig”? Vissulega er anorexia og ofmegrun stórt vandamál meðal unglingsstúlkna. En...

Re: Fallegir magavöðvar! :D

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
hvernig fær maður fallega magavöðva? Með því að lækka fituhlutfall líkamans.

Re: Að minnka of mössuð læri?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Í staðinn fyrir að reyna að minnka lærin sem ég held að sé borin von öðruvísi en að fá einhvern sjúkdóm og leggjast í kör um alllangt skeið, þá legg ég frekar til að þú reynir að stækka aðra hluta líkamans til samræmis. T.d. með því að lyfta lóðum og borða vel.

Re: Lyftingar - Heimsmet

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þeir eru óskyldir.

Re: Að minnka of mössuð læri?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hmmm. Ég leyfi mér að efast um að þú lítir út eins og vaxtarræktartröll.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok