Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Rétt þyngd?

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
BMI er í raun og veru rugl. Massað fólk getur flokkast sem “of þungt” þrátt fyrir að hafa varla neina fitu. Já, já, en í reynd eru afskaplega fáir svo massaðir. Fyrir obbann af venjulegu fólki dugar þetta alveg sem gróft viðmið. En auðvitað er fituprósenta mun betri. Tækin eru frekar gagnslaus til að mæla hana.

Re: Rétt þyngd?

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Frekar í léttari kantinum ef eitthvað er. Þú ert með BMI 20.2 (http://www.cdc.gov/nccdphp/dnpa/bmi/calc-bmi.htm#Metric) sem er svona í lægra lagi. Hvort það er of lágt er hins vegar spurning? Ef þú ert hraust og hress þá er þetta í góðu lagi.

Re: Sma huh.. spurning :D

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
-Er það ekki hreyfing? Jú, en þetta var svar við staðhæfingu þinni: Þannig að BESTA ráðið er að HLAUPA og BORÐA RÉTT…

Re: Sma huh.. spurning :D

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég er að mörgu leyti sammála fantasiu. Til að missa aukafitu er hæfilegt að mataræði skili 500 hitaeiningum undir jafnvægi á dag. Hjá mjög mörgum unglingum í dag eru gos, sælgæti, snakk, kex og kökur að skila 1000 hitaeiningum eða meira á dag þannig að bara að sleppa því alveg er einum of mikil breyting. Þannig má bæta við 500 ha af hollum mat í staðinn. Hreyfing er vissulega holl og góð, en styrktarþjálfun og sprettþjálfun virka miklu, miklu betur í því skyni að missa fitu en þolþjálfun...

Re: Magaæfingar, mörg/fá reps?

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Prófaðu að hengja lóð í fæturna með keðju, hanga í upphífingastöng og lyfta svo hnjánum sem næst bringu. http://exrx.net/WeightExercises/RectusAbdominis/WtHangingLegHipRaise.html

Re: Sma huh.. spurning :D

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Flókið, eh? Nei, ekki flókið. Hins vegar oft allt annað en auðvelt. Það krefst viljastyrks og umhugsunar.

Re: Matarræði fyrir þá sem eru að byggja sig upp

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Fyrirgefðu, vinur, ég var alls ekki að gera lítið úr þér eða þinni þekkingu enda veit ég ekkert um þig annað en það sem þú hefur sagt hér. Ég biðst afsökunar ef þú tókst þessa setningu nærri þér. Eflaust ertu ágætur þjálfari, ég efa það ekki. Ég þurfti hins vegar að mótmæla því að ég gæti ekki haft vit á íþróttalífeðlisfræði eða næringarfræði af því að ég væri ekki atvinnuþjálfari. Og ég hef að baki meira en 20 ára reynslu í íþróttaiðkun og þjálfun. Ég hafði æft og kennt íþróttir í 15 ár...

Re: ef maður er 170 cm

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Líkamsmassastuðull dugar mjög vel fyrir faraldursfræðilegar rannsóknir á offitu og þvíumlíku, einkum vegna þess að upplýsingar um hæð og þyngd eru auðfengnar. Hann dugar síður fyrir einstaklinga, en þó alveg þokkalega nema fyrir mjög massað fólk. Mjög massað fólk er svo til eingöngu þeir sem lyfta. Mjög massað fólk er frekar sjaldgæft. Ég er nokkuð viss um að ef þú tækir sýnishorn af 100 manneskjum með BMI yfir 30 (of feitir) þá væru innan við 5 sem væru “massaðir”. Sennilega innan við 1....

Re: ef maður er 170 cm

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Samkvæmt BMI (líkamsmassastuðli) er maður sem er 170cm: undir 53.5kg (BMI < 18.5) - óeðlilega grannur 54-72kg (BMI 18.5-24.9) - eðlilegt 73-86kg (BMI 25-29.9) - of þungur 87kg+ (BMI > 30) - of feitur Hins vegar…. Eðlilegu mörkin eru ansi víð. Maður sem væri í eðlilegum holdum 55kg væri örugglega ansi feitur í 70. Jafnvel hugsanlega hættulega feitur. Þar að auki geta þeir sem lyfta og stunda íþróttir verið ansi þungir án þess að vera feitir. Ég er með BMI 28 en er samt frekar grannur. Konur...

Re: Sma huh.. spurning :D

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Já, það er tískan í dag. Ekki eru allir sammála þeirri aðferð en hún virkar svosem ágætlega fyrir þá sem þola illa að vera svangir (flestir kannski?). Lokaniðurstaðan er samt sú að maður borðar færri hitaeiningar í heildina yfir daginn og það er það sem skiptir máli. Vissulega eru ýmsar aðferðir til þess.

Re: 4-6 reps?

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég er ekki sammála rfm um allt þó að hans aðferð sé fín út af fyrir sig. Hans prógram er með miklu fleiri æfingar, miklu fleiri sett og miklu fleiri reps en ég mundi mæla með. Ég tek aldrei fleiri en 8 reps nema í upphitunarsettum. Sjaldan fleiri en 6.

Re: Að "cutta" sig?

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ja, teygjur eru ofmetnar sem upphitun, en hins vegar er gott að hita upp með afslappaðri útgáfu af því sem á að gera. Þú hitar upp fyrir hlaup með léttu skokki, hitar upp fyrir hnébeygjur með hnébeygjum án lóða, hitar upp fyrir box með léttu skuggaboxi osfrv. Fjölmargar nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að teygjur á undan æfingum draga ekki úr meiðslum heldur þvert á móti, auka meiðsli.

Re: Sma huh.. spurning :D

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Að sjálfsögðu. Biðst afsökunar á fljótfærninni. Takk fyrir að benda mér á þetta.

Re: Sma huh.. spurning :D

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
1) Borða minna. 2) Hreyfa sig minna. 3) Halda þessu áfram. 4) Að eilífu. Gangi þér vel. Ég veit þetta hljómar einfalt og það er það. Sáraeinfalt. Það er bara ekki auðvelt. En þetta er eina ráðið og það er ekkert hægt að stytta sér leið. .

Re: Að "cutta" sig?

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Nei, þú bætir varla á þig massa og missir fitu samtímis. Samt er mikilvægt að halda áfram að lyfta svo það sem þú missir sé fita að mestu leyti en ekki vöðvar. Þú þarft að minnka hitaeiningarnar eitthvað, niður í ca 500 Kcal á dag undir jafnvægi. Með þessu móti missirðu ca. 1/2 kíló á viku. Óráðlegt er að reyna að missa hraðar nema þú sért mjög feitur (held ekki miðað við lýsingu). Það gæti verið nóg bara að hætta í sælgætinu. Ekki breyta lyftingaprógramminu. Þú gætir samt þurft að létta...

Re: 4-6 reps?

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Er hollt að taka bara 4-6 reps á æfingum ca. 4 sinnum? Já. … en er óhollt að vera á þessu lengi? Nei.

Re: Þol

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ekki sund, en fyrir hinar já.

Re: Þol

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þol, eins og aðrar gerðir líkamshreysti, er sérhæft fyrir þá þjálfun sem gerð er þó hún sé ekki eins sérhæfð og styrkþjálfun. Þ.e. hlaupaþjálfun eykur þol manns við t.d. hjólreiðar meira en bekkpressa eykur fótastyrk. Þoli má skipta í þrjár megingerðir: - Loftháð þol (aerobic endurance) - Loftfirrt þol (anaerobic endurance) - Vöðvaþol (local muscle endurance) Loftháð þol er það sem oftast er talað um þegar rætt er um þol. Það verður best þjálfað með tiltölulega löngum lotum (15 mín+) undir...

Re: Matarræði fyrir þá sem eru að byggja sig upp

í Heilsa fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þetta snýst um hvort maður trúir alls konar tröllasögum sem ganga meðal manna eða því sem rannsóknir hafa sýnt fram á. Af einhverjum ástæðum er næstum eins mikið af hindurvitni á kreiki um mataræði eins og um trúmál.

Re: Matarræði fyrir þá sem eru að byggja sig upp

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Mér finnast ‘diet’ drykkir vondir og drekk þá ekki. Hins vegar er alls konar fólk búið að reyna að sannfæra mig um óhollustu sætuefna í áraraðir og ég hef margoft leitað gegnum nýjustu rannsóknir á þeim og aldrei fundið neitt því til stuðnings. Efnafræðilega séð meikar það engan sens að aspartam ætti að vera hættulegt. Það er einfaldlega 2 aminósýrur tengdar saman. Í meltingarveginum klofnar tengið milli þeirra og þær meltast eins og hvert annað prótein. Fólki er bara svo hætt við að...

Re: Matarræði fyrir þá sem eru að byggja sig upp

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Af hverju ætti það að vera? Ég er 43 ára líffræðingur og hef haft áhuga á íþróttum, þjálfunarlífeðlisfræði og næringarfræði í meira en 20 ár. Ég hef kennt líffræði, lífefnafræði og lífeðlisfræði á háskólastigi og stundað ýmsar íþróttir í áratugi. Rfm, með fullri virðingu fyrir honum, er 21 árs strákur sem tók einkaþjálfaranámskeið. Segðu mér af hverju hann ætti að vita meira um hollustu skyrs eða sætuefna en ég?

Re: Matarræði fyrir þá sem eru að byggja sig upp

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Hómópatar eru nú eiginlega nýaldarkristallaheilunarhippar dauðans, fyrirgefðu orðbragðið. Ég mundi ekki taka orð hómópata fyrir því að himininn væri blár: http://skepdic.com/homeo.html

Re: Matarræði fyrir þá sem eru að byggja sig upp

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Majónes er virkilega fitandi, og þar af leiðandi óholl. Ef ég man rétt, þá er yfir 60gr af fitu í 100gr. Já já, en ef þú ert að byggja upp (titill greinarinnar) þá þarftu á hitaeiningum að halda og majónes er ekkert verri leið til að fá þær en hver önnur. Það eru allskonar klisjur um majónes (“kransæðakítti” og svona) sem eiga við engin rök að styðjast. Það er ekkert óhollara að smyrja brauðið sitt með majónesi en með Klípu eða Létt og Laggott og mun auðveldara að smyrja þunnt. Sætuefni...

Re: Matarræði fyrir þá sem eru að byggja sig upp

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég er svosem sammála mörgu í grein þinni, rfm, en annað er hrein hjátrú og hindurvitni sem ég finn mig knúinn til að gera athugasemdir við. Hin gullna regla er 2000 kaloríur á dag fyrir konur og 2500 kaloríur fyrir karla. Þetta eru ágætar þumalfingurstölur fyrir fólk sem vill grennast, en alls ekki nóg fyrir íþróttafólk í strangri þjálfun. …. majónesið er eitthvað það óhollasta sem maðurinn getur látið ofan í sig. Það er bara hjátrú. Majónes er ekkert óhollara en önnur jurtafita, enda 98%...

Re: Matarræði fyrir þá sem eru að byggja sig upp

í Heilsa fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þú þarft einfaldlega að borða meira. Ekki bara skyr. Þegar menn eru að reyna að grennast skiptir miklu máli að fá mikið prótein því það dregur úr matarlyst. Sá sem vill þyngjast þarf vissulega “nóg” prótein, en flestir fá meira en nóg. Hann þarf aðallega meira af hitaeiningum. Mat sumsé.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok