Já já, dugir og dugir ekki. Vissulega er hægt að æfa líkamann ágætlega án lóða, en það eru margar æfingar einfaldari og áhrifaríkari með lóðum. Það er td erfitt að finna virkilega góða æfingu fyrir mjóbak án lóða. Það eru enn furðulega miklir fordómar á móti lyftingum meðal heilbrigðisstétta og íþróttaþjálfara jafnvel þó gagnsemi og heilbrigði þeirra sé vel sönnuð. Allar líkamsæfingar hafa einhverja áhættu í för með sér og eru lyftingar þar ekki undan skildar. Hættan er þó ekkert meiri með...