Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: lats?

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ég fékk “bakbreiðavöðvi” úr Orðabanka íslenskrar málstöðvar, en eflaust hafa önnur orð verið notuð. Það er kosturinn við að nota dautt mál, latínu, fyrir fræðiorð. Hún breytist ekki eins ört og þau sem lifandi eru. Latneska orðið þýðir strangt til tekið “hliðarbak” og mætti alveg eins þýða “hliðarbakvöðvi” sem lýsir honum ágætlega.

Re: lats?

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Strang til tekið “bakbreiðavöðvi”.

Re: Mataræði fyrir uppbyggingu

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Af hverju heldurðu að sá sem er að þyngja sig ætti ekki að borða ávexti eða brauð? Hver eru rökin fyrir því? Til hvers ætti viðkomandi að vera að éta allt þetta aukaprótein? Það er enginn vandi að fá meira en nóg prótein þegar maður er að þyngja sig. Vandinn er að fá nóg af hitaeiningum. Það er hins vegar meiri ástæða til að bæta við auka próteini þegar maður er að skera og borðar lítið. Prótein dregur úr matarlyst.

Re: Lyftingar

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Í hvaða lyftu? Í hnébeygju er það lítið, í bekkpressu nokkuð gott, í axlapressu mjög gott, í krulli frábært, í axlarlyftu ofurmannlegt. Það er ekki hægt að vera of sterkur, hvort sem maður er 14 ára eða eitthvað annað.

Re: Skordýrabit

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ofnæmisviðbrögð við drasli í sárinu, munnvatni skordýrsins og fleiru. Ofnæmislyf og ýmis krem með antihistamíni draga úr kláðanum. Spurðu í apóteki eða farðu til læknis.

Re: Spurningar

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Fyrst að efri parturinn þarf fleiri æfingar, afhverju ertu þá með tvær réttstöðuæfingar á 2 dögum? Sorry, prentvilla. Ég meinti auðvitað: réttstaða + bekkpressa og hnébeygja + bekkpressa Ég talaði við kraftlyftingarþjálfara sem hefur margra ára reynslu á þessu, bæði þjálfun og keppnum og hann sagði að betra væri að gera réttstöðu einusinni í viku á þessum aldri (unglingsárin) og taka á hnébeygju svo réttstöðulyftu eftir hana. Ég er sammála því að gera bæði hnébeygju og réttstöðu framan af,...

Re: Harsperur eða slit?

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Þumalfingursreglan í dag er að teygja nóg til að mæta sveigjanleikakröfum þeirrar íþróttar sem þú stundar, en ekki meira en það. Liðleiki liðleikans vegna er óþarfur. Auðvitað þurfa menn vissan liðleika til að framkvæma þær hreyfingar sem íþrótt þeirra (eða daglegt líf) krefst. Það segir sig sjálft. En teygjur eftir æfingar minnka ekki harðsperrur og teygjur fyrir æfingar minnka ekki líkurnar á meiðslum.

Re: Spurningar

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Fyrir minn smekk væri betra: réttstaða + bekkpressa einn daginn. hnébeygja + réttstaða hinn daginn. Samkvæmt minni reynslu þarf ég miklu lengri tíma til að jafna mig í löppunum en í efri líkamanum og efri parturinn virðist þurfa tíðari æfingar. Þetta stemmir líka við ráðleggingar virtustu og færustu kraftlyftingaþjálfari eins og Dr Squat og Westside hópsins. Algengast er að 4-skiptar rútínur hjá kraftlyftingamönnum séu einhvers konar afbrigði af: 1 - Hnébeygja 2 - Bekkpressa 3 - Réttstaða 4...

Re: Spurningar

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Það er engin ástæða fyrir byrjanda að skipta prógramminu sínu neitt upp. Það er allt í lagi að gera bekkpressu, hnébeygju á sömu æfingunni. Eftir svona ár gæti hann þurft að flytja hnébeygju og réttstöðu á sitthvorn daginn. Hann nær miklu meiri árangri fyrst um sinn með því að æfa hvern vöðvahóp 3svar í viku heldur en 1 sinni í viku. Og fær miklu meiri æfingu í tæknilegum smáatriðum í leiðinni.

Re: Magavöðvi... 1 eða fleiri?

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
1 - Það er ekki æfing fyrir magavöðvana nema að litlu leyti. Hún reynir mestmegnis á lundina (iliopsoas). Magavöðvinn er í elgeru aukahlutverki í þessari æfingu. 2 - Æfing sem þú getur 100 reps í er gagnslaus. Hún æfir ekkert nema lítillega þolið. Gerðu þyngri magaæfingu sem þú getur ekki nema 5-15 reps í.

Re: Magavöðvar

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Lyftu lóðum og bættu á þig nokkrum kílóum af vöðvum. Hættu að spá í sixpack fyrr en þú ert með einhverja vöðva til að sjást.

Re: Magavöðvar

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Alveg rétt. Og ekki bara “varla” heldur “alls ekki”. Margir eru of grannir en samt feitir. “Skinny fat” er það kallað í bransanum. Lyftingar eru málið.

Re: Fæðubótarefni.

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þ.a.l er voða lítið af fitu á mínum líkama til að breyta í vöðva.Fita breytist ekki í vöðva þó að feitur byrjandi geti í nokkrar fyrstu vikurnar nýtt orkuforða fitunnar til vöðvauppbyggingar. Hvaða fæðubótarefni eru að skila árangri í dag.Aðalatriðið er að borða mat. Mat, mat og aftur mat. Ekki setja traust þitt á fæðubótarefni. Ef þú ert mjög tímabundinn eða latur við að útbúa mat má svosem fá sér próteinsjeik en ekki treysta á þá. Hvaða gerð skiptir litlu, bara að hann sé með nóg af...

Re: Magavöðvi... 1 eða fleiri?

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Það þyngist talsvert en breytist ekki beinlínis. Magavöðvinn gerir ekkert nema halda við (styttist ekki) fyrr en hryggurinn bognar. Það er mjög erfitt að ná því með beinum fótum því það er innri hryggvöðvinn (lundin, iliopsoas) sem lyftir fótunum, ekki magavöðvinn. Flestir ættu að gera þessa æfingu með bognum hnjám og þyngja með lóðum. Reyna að ná hnjánum sem næst bringunni.

Re: Vöðvabólga

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Vöðvabólgu í höndunum? ? Ertu viss? Hvar í höndunum þá?

Re: Vöðvabólga

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Svínvirkaði fyrir mig. Læknar hafa almennt tilhneigingu til að vera á móti lyftingum. Með fullri virðingu fyrir þeim ágætu mönnum þá læra þeir ekkert um líkamsþjálfunarfræði nema þeir sérhæfi sig í íþróttalækningum eða slíku. Læknar, eins og almenningur, líta almennt á lyftingar sem öfgafulla, og þar af leiðandi hættulega, líkamsþjálfunaraðferð. Eðli læknisfræðinnar er íhaldssemi í meðferð (eðlilega) og læknar eru því oft tregir til að mæla með einhverju sem þeir þekkja lítið til.

Re: Vöðvabólga

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég var með þetta í 20 ár. Skánaði þegar ég fór að synda reglulega. Læknaðist alveg þegar ég fór að lyfta reglulega. Því miður, eina sem ég get sagt.

Re: Magavöðvi... 1 eða fleiri?

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ekki upp á það hvaða hluta magavöðvans þær reyna á. http://exrx.net/WeightTraining/Myths.html#anchor7441959 Hins vegar eru magaæfingar misgóðar að öðru leyti. Sumar er erfitt að þyngja að neinu viti og eru því gagnslitlar. Aðrar reyna fyrst og fremst á lundina, ekki magavöðvana. Til þess að magavöðvarnir vinni raunverulega vinnu þarf hryggurinn að bogna. Ég tel að styrkur magavöðvanna geti verið takmarkandi þáttur og að sennilega sé gagnlegt að æfa þá sérstaklega jafnvel þó maður taki þungar...

Re: Magavöðvi... 1 eða fleiri?

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þetta stækkar/styrkist allt jafnt. Það er ekki hægt að gera æfingu sérstaklega fyrir efri eða neðri magavöðva.

Re: Skera sig niður fyrir sumarið!

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Hvaða þvæla er þetta? Hvaðan hefur Vander þessa vitleysu? Hefurðu tilvitnun?

Re: 2000 kcal á 30 mín göngu?

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Nú? Þá er annaðhvort höfundurinn eða prófarkalesarinn algerlega úti að skíta. Þetta þýddi að sá sem gengi 6-8 klst á dag, sem er algengt og tiltölulega auðvelt*, brenndi 12000-16000 ha á dag + segjum 3000 ha grunnefnaskipti. Þá þyrfti viðkomandi að borða 15-19000 kcal á dag, tvöfalt meira en Jón Páll Sigmarsson uppá sitt besta. Gangi þeim vel að reyna. *Bréfberar og fjallgöngufólk gerir þetta oft t.d.

Re: 2000 kcal á 30 mín göngu?

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þetta er prentvilla. Á sennilega að vera 200.

Re: æfingarplan..

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þetta er reyndar fengið að láni úr pósti frá mér.

Re: 6 sec abs ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Nei, þeir sækja ekki í fitu næst sér til að brenna. Það er þjóðsaga því miður. Þú getur ekki beint brennslunni sértækt að ákveðnum líkamshlutum. Magavöðvar geta vissulega stækkað, en besta aðferðin til þess, eins og með aðra vöðva, er að gera þungar æfingar með 5-10 endurtekningum, ekki tugi eða hundruð léttra æfinga eins og fólki er tamt að gera.

Re: 6 sec abs ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Það er yfirleitt talað um að magavöðvar sjáist við um 10% fituhlutfall hjá körlum og sirka 16% hjá konum. Þetta er auðvitað ekki nákvæmt því að fitudreifingu er mismunandi á fólki. Sumir karlar eru t.d. nánast eingöngu með iðrafitu (mör) og geta haft sjáanlega magavöðva þrátt fyrir miklu hærra fituhlutfall og mikla ístru.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok