Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Magi...!!!

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Bekkpressa hefur lítil sem engin áhrif á rassinn.

Re: Kaupa hydroxicut??

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hydroxycut fæst svo að segja í öllum matvöruverslunum og apótekum. Auk þess hjá umboðsaðilanum Fitness Sport og fæðubótarefnaverslunum eins og vitamin.is. Ég hef litla trú á því.

Re: Kókfíkn

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Kaffi er miklu hollara. Lífselixír beinlínis.

Re: Kókfíkn

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Mér fannst mjög auðvelt að hætta að drekka kók fyrir 3 árum (drakk ca 2L á dag í tæp 30 ár) en talsvert erfiðara að hætta að reykja fyrir 6 árum (reykti uþb pakka á dag í um 20 ár). En að vísu drekk ég kaffi sem náttúrulega viðheldur koffínfíkninni.

Re: Kókfíkn

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Jamm. Fátt betra en sjóðheitur tvöfaldur macchiato.

Re: Kókfíkn

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Drekka kaffi í staðinn?

Re: Spurning

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Magaæfingar styrkja magavöðvann vissulega, en ef þú getur gert 100 endurtekningar þá er æfingin og létt og þú þarft að gera erfiðari æfingu eða bæta við þyngd.

Re: Spurning

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Og fáránlega rangt. Magaæfingar gera ekkert til að grenna magann.

Re: Matur

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er meira en nóg prótein en sennilega hvergi nándar nærri nógu margar hitaeiningar.

Re: Six pack

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég hef aldrei skoðað www.steroid.com og dytti það aldrei í hug. Ég hef engan áhuga á sterum. Ég er bara líffræðingur með áhuga á heilsu og líkamsrækt. Það gæti vel verið fjallað um efnið á síðu um ólögleg lyf þó það sé ekki steri.

Re: Six pack

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
DNP 2,4-Dinitrófenól er ekki steri, en jú það er (lífshættulegt) efni sem getur aukið fitubrennslu. Að nota það til að grennast er álíka heimskulegt og að reyna að bræða af sér fituna með logsuðutæki. Triacana (Tiratricol) er heldur ekki steri en er vissulega lyf sem hefur verið notað gegn offitu. Það hefur einhver (slæm) áhrif á skjaldkirtilsstarfssemi og verið er að athuga hvort það stenst öryggiskröfur. Ég mundi ekki mæla með því. Hvernig er það, eru menn farnir að nota orðið “sterar”...

Re: Heiðrún Sigurðardóttir

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hún er ekkert sérlega mössuð. Hins vegar óhóflega skorin, en það fylgir víst þessum keppnum.

Re: Fæðubóta efni

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ja, fæðubótarefni (próteinduft) getur svosem hjálpað ef þú ert í mikilli tímaþröng, mjög latur að borða eða afar matvandur. Hins vegar er aðalatriðið að venja sig á að borða hollan, venjulegan mat. Það er enginn vandi að fá meira en nóg prótein úr kjöti, fiski, mjólkurvörum, eggjum, hnetum og öðrum mat. Ef þú ert að lyfta reglulega af sæmilegum krafti ættirðu að geta bætt á þig vöðvum án þess að fitna óhóflega. Hins vegar má alltaf búast við því að einhver fita komi með. Þess vegna skera...

Re: Hvað er Bóla?

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hvað er Bóla? Fitukirtill í húðinni sem hefur stíflast og síðan sýkst af húðbakteríum sem nærast á fitunni. Hvað er Gröftur? Bakteríur, dauðar og lifandi og úrgangsefni þeirra. Afhverju Kemur hann? Sjá fyrsta svar. Hver er munurinn á Fílapensli og Bólu? Fílapensill er fitukirtill sem hefur stíflast, en ekki náð að sýkjast ennþá.

Re: Ráðlagðar lyftingar

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þegar ég segi fyrstu 10 skiptin þá meina ég fyrstu 10 æfingarnar eða sirka 3-4 vikur. Úthald helst mjög í hendur við styrk. Sá sem tekur td 100kg í einhverri lyftu getur tekið 20kg miklu, miklu oftar en sá sem tekur 50kg í sömu lyftu, alveg sama hvað 50 kílóa manneskjan æfir með mörg reps og þó að 100 kílóa manneskjan æfi aldrei fleiri en 3 reps. Þess vegna ættu allir að æfa lyftingar fyrst og fremst með styrk í huga framan af. Sérhæfing getur komið síðar.

Re: Ráðlagðar lyftingar

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Já, en fyrstu 10 skiptin eða svo er engin nauðsyn að settið sé erfitt. Sé maður byrjandi eða langt síðan maður var í þjálfun eru mikil þjálfunaráhrif jafnvel þó að þyngdin sé mun léttari en maður ræður við. Síðar þarf að fara að þyngja þannig að settið reyni vel á.

Re: Six pack

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Það má svosem vera, en til hvers ætti einhver að þurfa stera til þess eins að verða óhugnanlega mjór? Sterar hjálpa ekkert við það.

Re: Ekkert Gerist !

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Flestir þyngjast eitthvað í upphafi þegar þeir fara að æfa. Þyngdaraukningin að aðeins að litlu leyti beinlínis vöðvamassi, en að mestu leyti glýkógen (sterkja, sykurforðabúr) og vatn sem því fylgir. Ekki hafa áhyggjur af því að þyngjast í fyrstu. Það er alveg eðlilegt.

Re: Bíópopp

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Já. Það er ágætt að hlaupa t.d. 2svar í viku og lyfta 2svar. Það er allt í lagi að hlaupa smávegis áður en lyft er til að hita upp, en ekki 20 mín. Þá er lítill kraftur eftir og lyftingarnar gagnslausar.

Re: Bíópopp

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ekki hlaupa áður en þú lyftir. Hlauptu helst ekki sama dag og þú lyftir, en ef þú verður, hlauptu þá á eftir.

Re: Mútur ??

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Sumir verða ekkert varir við það þegar þeir fara í mútur. Röddin bara smádýpkar. Hjá öðrum er ferlið meira áberandi. Þeir sem syngja mikið taka frekar eftir breytingunum en aðrir.

Re: Enn ein magavöðva spurningin

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Spáðu ekki þessa smábumbu, hún hverfur ef þú ferð að reyna á þig. Þú getur ekki minnkað bumbuna með magaæfingum! 57kg er of lítið fyrir þína hæð en það fer þó eitthvað eftir aldri. Það tekur tíma fyrir breiddina að ná því að verða í samræmi við hæðina. Eins og fantasia segir þá ættirðu að lyfta. Lyftingar eru eina raunhæfa leiðin til að bæta við sig vöðvamassa. Fræðilega séð gætirðu svosem unnið við að stafla fiskkössum eða heyböggum, en slík vinna er mestmegnis gerð með vélum í dag. Þú...

Re: Veit einhver?

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Það væri alltof flókið. Það eru milljón aðferðir til að setja saman hollan matseðil. Minnkaðu sykur, hveiti og mettaða fitu. Reyndu að forðast að borða of mikið af unnum matvælum. Auktu ávexti, grænmeti og próteinríka fæðu.

Re: Slit?

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Það er engin leið nema hugsanlega með skurðaðgerð. Þetta dofnar með tímanum.

Re: Handlóð

í Heilsa fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Þyngri lóð, ekki spurning. 2x5kg eru ekki neitt. En hvaða lyftur gerirðu? Bara einhverjar fyrir handleggi geri ég ráð fyrir? Til að eitthvað vit sé í líkamsþjálfun þarf að æfa allan líkamann, efri og neðri. Og bæði ýta og toga.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok