Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Tillögur?

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Já, nema að þau eru öll byggð á tækjum, ekki lausum lóðum. Ég er að mestu leyti á móti tækjum nema fyrir aukaæfingar.

Re: Tillögur?

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég er í öllum meginatriðum sammála Elvari. Kannski að því undanskildu að ég tel óþarft fyrir byrjanda fyrsta árið eða svo að skipta prógramminu mikið niður. Byrjandi getur alveg tekið allar aðallyfturnar á hverri æfingu svo lengi sem hann lætur líða 2 sólarhringa á milli. Framfarirnar verða mun hraðari ef hver vöðvahópur er æfður oftar en 1 sinni í viku framan af.

Re: Æfingarplan

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Nei. Sá sem tekur 250kg í hnébeygju er að leggja miklu meira á vöðvana en sá sem tekur 50kg. Þetta eru ekki óraunhæfar tölur fyrir byrjanda og sæmilegan kraftlyftingamann sem eru 75 til 100 kíló. Það er enginn vandi fyrir byrjanda að taka nokkur sett af bekkpressu með 90% af maxi, 3-5 reps. Það væri óhugsandi fyrir Auðunn Jónsson. Þegar ég var að byrja gat ég alveg deddað nokkur sett með 80-90% af maxi eða svo 3svar í viku. Ég mundi drepa mig ef ég reyndi það núna.

Re: Kreatínspurning enn og aftur

í Heilsa fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ha? Til hvers ætti framleiðandi að eyða tíma og peningum í dýrar töflugerðarvélar, kaupanda til þæginda og hægðarauka, ef kaupandi ætlar svo að kremja töflurnar í duft?

Re: Jón Páll ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Fyrirgefðu. Ég var að sjálfsögðu að svara CendenZ, ekki þér. Ég er ekkert ónæmari en aðrir fyrir undarlegri uppsetningu huga.

Re: Jón Páll ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Mér sýnist reyndar að flest rifrildri hérna koma upp vegna þess að menn svara öðrum aðila en þeir ætluðu sér.

Re: Jón Páll ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég skil ekki alveg, Damon. Þú svaraðir mér en ætlaðir væntanlega að svara einhverjum öðrum.

Re: Jón Páll ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ef einhver krakkaormur kallar mig “heimskt viðrini”, þá svara ég fullum hálsi.

Re: Max í bekk ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Það eru ekki skráð U16 met, en U18 metin eru hérna.

Re: Brennslá á vöðvum

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Já, smá prótein og sykur fyrir og eftir æfingar (t.d. eina kókómjólk eða hálfan líter af mjólk). En aðallega þarftu að borða meira en þú brennir. Líkaminn býr ekki til aukavöðva nema hann eigi afgang. Það er svo einfalt.

Re: Armbeygjur

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Já, það má nota slopp á venjulegum mótum. Hins vegar eru líka haldin svokölluð “kjötmót”, oftast kennd við Gym 80, en þar má ekki nota sloppa. Það þarf líka dálítið að venjast þeim og æfa sérstaklega fyrir sloppana. Þeir gefa ekki sjálfkrafa mikið og sumum nánast ekkert. Það fer eftir stíl, líkamsbyggingu og hlutfallslegum styrk vöðvahópa hvað þeir gefa mikið. Svo náttúrulega gerð sloppsins. Menn eru að fá 10-40kg útúr sloppnum heyrist mér.

Re: Armbeygjur

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ekki get ég séð það í fljótu bragði, því miður. Þú ættir sennilega að hvíla þig á armbeygjunum í bili ef þú átt við axlarvandamál að stríða. Þau geta verið erfið viðureignar. Ef viku hvíld dugir ekki ættirðu að leita læknis.

Re: Ofstyrking og hvað á á að láta vera ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Best er að styrkja líkamann allan sem heild, ekki einn og einn vöðva í einu. Það er lítil hætta á því að þú fáir mjög stóra vöðva þó þeir stækki eitthvað aðeins í upphafi. Konur hafa almennt ekki rétt hormónaumhverfi til að fá mjög stóra vöðva. Frjálsíþróttakonur þykja mér fallegast vaxnar, t.d. spretthlauparar og stökkvarar. Hnébeygjan er besta æfingin fyrir rass, mjaðmir og læri. Besta æfingin yfirleitt held ég bara. Ágæt fyrir kálfa líka.

Re: Armbeygjur

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þú brennir mjög mikið á framhandleggjunum og eitthvað á bicep á armbeygjum meðan þú styrkir vöðvana. Nei. Armbeygjur reyna mest á tricep (þríhöfða), pectoralis (brjóstvöðva) og fremri axlarvöðva. Nánast ekkert á bicep (tvíhöfða) og lítið á framhandleggi. Þær styrkja vöðva þeirra sem aðeins geta fáar endurtekningar, en eru of auðveldar (þessar venjulegu amk) til að vera góð styrktaræfing fyrir flesta karlmenn í sæmilegu formi.

Re: Armbeygjur

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þú svaraðir sennilega röngum manni. Allavega sagði Balders sama og þú.

Re: Teygjur, liðleiki og liðir

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég er nú ekki viss. Á eitt má benda og það er að flestar þessar rannsóknir eru gerðar á íþróttamönnum sem hafa flestir meiri liðleika en í meðallagi áður en rannsóknin er gerð. Ákveðinn grunnliðleiki er náttúrulega nauðsynlegur til að framkvæma ýmsar hreyfingar við íþróttir, leiki og þjálfun og sjálfsagt að teygja nóg til að uppfylla þær kröfur. Hins vegar er ég alveg viss um og hef mjög lengi verið, að ofurliðleiki eins og t.d. sumar konur hafa er mjög bagalegur og ýtir undir meiðsli....

Re: Teygjur, liðleiki og liðir

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Skoðun manna á teygjum hefur talsvert breyst á undanförnum örfáum árum. Nýjar rannsóknir virðast hafa sýnt að teygjur dragi ekki úr meiðslum í íþróttum hvort sem þær eru gerðar fyrir eða eftir æfingu. Herbert og Gabriel, 2002 Andersen, 2005 Hart, 2005 Í dag er því grunnregla þjálfunar sú að teygja nóg til að mæta hreyfikröfum þeirrar íþróttar sem maður stundar, en ekki meir. Þess má geta að það þarf þokkalegan liðleika til að gera löglega hnébeygju í kraftlyftingum og ennþá meiri liðleika í...

Re: Spa & Fitness

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Spa er enskt/alþjóðlegt orð fyrir “heilsulind”, stað þar sem vatn er notað í einhverjum heilsutengdum tilgangi. Nafnið kemur frá belgíska bænum Spa.

Re: Æfingarplan

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég myndi segja að þetta sé ALLTOF mikið af æfingum fyrir einn vöðvahóp. Já. Allt, alltof mikið.

Re: Armbeygjur

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Armbeygjur æfa í grófum dráttum sömu vöðva og bekkpressa, þ.e. brjóst, axlir og þríhöfða (aftan á handlegg). Armbeygjur á hnefunum eru jafngildar venjulegum, en vegna þess að hendurnar eru nær hvor annarri er álagið meira á þríhöfða og minna á axlir en í venjulegri. Þær reyna líka eitthvað meira á framhandlegg. Því lengri sem hreyfingin er, því meira álag á brjóst. Því fjær sem hendurnar eru hvor annarri því meira álag á axlir og minna á þríhöfða. Armbeygjur á annarri eru svo auðvitað...

Re: Jón Páll ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Damon. Mér er alveg sama hverjir þetta eru. Pólýpeptíð er annað nafn fyrir prótein, keðja af amínósýrum. Insúlín er lítið prótein sem hefur hormónaverkun. Sterar eru ýmis efni sem eru afleiður af kólesteról sameind. Sumir sterar eru vefaukandi, aðrir ekki. Sumir hafa hormónaverkum, aðrir ekki. Mér er alveg sama hver heldur öðru fram en pólýpeptíð getur aldrei verið steri. No way, no how. Þetta er eins ólíkt og kúkur og krít.

Re: Jón Páll ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég mundi aldrei ráðleggja neinum að nota neitt af þessum efnum og hef ekki gert það hér. Vertu ekki að leggja mér orð í munn, krakki.

Re: Jón Páll ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hvernig getur insúlín bæði verið pólýpeptíð (annað nafn fyrir prótein) og steri. Ertu asni? Ég er líffræðingur og ehf kennt líffræði í HÍ og KHÍ.

Re: Heimatilbúinn Prótein-Shake

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Gamall vani. Fjörmjólk er fín, en dýrari. Léttmjólk eða nýmjólk betri ef maður er að byggja upp. Ég er í viðhaldi eða niðurskurði 9-10 mánuði ársins svo ég vel undanrennuna.

Re: Jón Páll ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Insúlín er mikið notað við lyftingar. Nei. Misnotkun insúlíns er mjög sjaldgæf í lyftingum enda afar hættuleg. Insúlín er steri. Nei. Insúlín er prótein, ekki steri. þetta er það öfuglasta sem þú getur notað við þyngdaraukningu í hreinum vöðvamassa. Nei, það er ósennilegt að insúlín sé mjög gagnlegt til að auka vöðvamassa. Hugsanlega til að grennast en það er hættuleg aðferð. Hvers vegna ertu að segja mér þessa vitleysu? Ekki hef ég sagt eitt orð um insúlín eða stera hérna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok