Ég er með gríðarlega mikla vöðvabólgu í bakinu. Sérstaklega í öxlunum og hálsinum. Það er ógeðslega vont og ég er nánast alltaf með höfuðverki útaf þessu. Ég fór til læknis fyrir nokkrum mánuðum, en hann sagði að ég ætti bara að teygja svona asnalega á hálsinum öðru hverju og hætta að taka verkjalyf. Það virkaði fyrst, en núna er ég orðin svona slæm aftur.
Þannig að ég var að spá hvort einhver hérna geti mælt með einhverju - HVERJU SEM ER - til að losna við þetta. Svona áður en ég verð verkalyfjafíkill sem er ekki kúl.
Einhver?