Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Prótín

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þetta er gömul þjóðsaga. Það er ekkert til í þessu.

Re: Matur fyrir íþróttamenn

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ef þú ert að þyngjast ertu að fá nóg. Það er ekki hægt að reikna það út fyrirfram af neinu viti. Það má giska á 4500+, en það er gróft mat.

Re: Jón Páll ?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Grein um Jón Pál á Wikipedia Síða Nadda um Jón Pál Þess má geta að Hjalti “Úrsus” Árnason, fyrrum kraftakarl og æfingafélagi Jóns Páls er um þessar mundir að ljúka við gerð heimildamyndar um æfi kappans.

Re: Matur fyrir íþróttamenn

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Það kostar orku (hitaeiningar) að búa til vöðva. Þú bætir ekki við þig vöðvum nema þú sért að taka inn fleiri hitaeiningar en þú brennir. Fyrir alla nema algera byrjendur í töluverðri ofþyngd eru tilraunir til að grennast og massast samtímis dæmdar til að mistakast. Mjög margir ungir menn sem eru að reyna að bæta á sig massa gera þau mistök að éta bara próteinríkt megrunarfæði sem gefur ekki nægar hitaeiningar. Þeir grennast en fá litla sem enga vöðva.

Re: Æfingarplan

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Allavega fyrstu 6 mánuðina. Ég breytti engu í ár. En það má eins lengi og þér líður vel og tekur framförum. Það kemur samt að því að manni finnst maður ekki geta gert réttstöðulyftunni nægileg skil á eftir hnébeygjum. Það eru þessar æfingar sem mest trufla hver aðra. Þá má fara að breyta. Taka aðra léttar fyrst sem upphitun og svo hina þyngra. Enn seinna getur verið gott að skipta þeim milli daga. Taka t.d. hnébeygju Mánud og Föstud, réttstöðulyftu Miðvikud.

Re: Heimatilbúinn Prótein-Shake

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
“mat” ekki “mati”.

Re: Heimatilbúinn Prótein-Shake

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Já, en allt þetta gerist í meltingarveginum. Ég taldi ekki uppbyggilegt á þessum vettvangi að fara nákvæmlega út í niðurbrot peptíðkeðjanna en vissulega koma þar við sögu bæði exó- og endopeptíðasar. Magasýran sjálf hjálpar líka mjög til og brýtur niður mjög mikið af peptíðtengjum óservirkt án hjálpar ensíma. Bottom line: - Ekkert af þessu gerist í lifur. - Það þarf jafnmikið að melta prótein úr dufti eins og úr mati enda eru duftin fyrst og fremst mjólkurprótein.

Re: Æfingarplan

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Fyrirgefðu. Leiðrétting: fyrir byrjendur er best að æfa hvern vöðvahóp annan hvern dag. Þeir sem eru lengra komnir þurfa meiri hvíld því þeir geta sett miklu meira álag á vöðvana. Ég er alls ekki talsmaður þess að “meira sé betra”. Þvert á móti. Ef þú skoðar prógrammið sem ég mæli með þá legg ég til að taka mun færri sett per vöðvahóp á hverri æfingu, en dreifa settunum frekar á vikuna.

Re: Heimatilbúinn Prótein-Shake

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ja, lifrin flokkar að vísu ýmislegt niður, en niðurbrot próteina í amínósýrur fer fram í meltingarveginum. Aðeins stakar amínósýrur komast út í blóðrásina og þaðan til lifrar, vöðva eða annað.

Re: Heimatilbúinn Prótein-Shake

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég yrði nú aldrei sá sem mælti með dufti í stað matar hér en sannleikurinn er sá að líkaminn þarf líka að melta próteinið í próteindufti alveg eins og ef það kæmi úr skyri. Prótein eru langar keðjur af amínósýrum. Til að nýta það þarf fyrst að klippa þau niður í stakar amínósýrur.

Re: Æfingarplan

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég mundi sterklega mæla með því að: 1) einfalda planið mikið. 2) byggja mest á grunnæfingum með lausum lóðum sem æfa marga vöðva í einu. 3) ekki skipta líkamanum svona mikið niður í upphafi. Það er alger óþarfi og hægir mikið á framförum. Óskipt eða tvískipt plan er best til að byrja með. 4) Í upphafi þarftu að leggja áherslu á styrk. Þú þarft færri æfingar, fleiri sett og færri reps. 5x5 er mjög gott til að byggja upp grunnstyrk. 5) Það er best að æfa hvern vöðvahóp á 48 tíma fresti. 1...

Re: Heimatilbúinn Prótein-Shake

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Það eru um 4.5g af sykri í 100ml af mjólk (eða undanrennu eða léttmjólk). Það er svipað og í öðrum löndum. Sykurinn í mjólk er mjólkursýkur. Hann er tvísykra eins og súkrósi (strásykur) en ekki eins sætur. Hann er álíka óhollur eða hollur, en heldur betri fyrir tennurnar. Ég mundi ekki hafa stórar áhyggjur af sykurmagninu í mjólk. Það er mun meira í flestum próteindrykkjum og fyrir og eftir æfingar þarf líkaminn nauðsynlega á sykri að halda.

Re: Sjúkdómur

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Grein um berkla á doktor.is Berklar er alvarleg og oft banvæn lungnabólga af völdum bakteríu (Mycobacterium tuberculosis) og var í eina tíð mikill skaðvaldur hér á landi og víðar. Fúkkalyf hafa fækkað mjög dauðsföllum af völdum berkla og berklasýkingar eru fátíðar hér á landi nú orðið. Hins vegar hafa komið upp berklabakteríustofnar á síðari árum sem eru ónæmir fyrir ýmsum sýklalyfjum og því eru berklar aftur orðnir læknum áhyggjuefni í ýmsum heimshlutum.

Re: Heimatilbúinn Prótein-Shake

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hér er mín uppskrift að próteinsjeik, drekk sirka 2 svona á dag: 1L undanrenna. Opnist og drekkist. 35g prótein. 48g kolvetni. 0.1g fita. 332 kcal.

Re: Matur fyrir íþróttamenn

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ummm, jú. Vöðvarnir þurfa bæði umfram prótein og umfram hitaeiningar til þess að þeir stækki. Flestir ofmeta samt próteinþörfina og vanmeta hitaeiningaþörfina. Það er algengasta ástæðan fyrir slökum árangri við vöðvauppbyggingu. Vissulega kemur testósterón þarna við sögu en er alls ekki nægjanlegt eitt sér. Það er eins og að segja að bensínpedalinn einn sér nægi til að bíll komist hraðar.

Re: Stjórnendur?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
femur ;)

Re: Bæta og ekki brenna...

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þegar ég var enn að æfa sund gekk mér mjög vel með því að lyfta tvisvar í viku, ekki á sömu dögum og ég synti. Ég tók alltaf sama prógrammið og bara basic æfingar, ekkert smávöðvadúllerí. Bara hnébeygju, réttstöðulyftu, bekkpressu og upphífingar. 3-4 sett af hverju.

Re: Er að selja fæðurbótapakka!

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ekki benda rannsóknir til þess: http://www.pubmedcentral.gov/articlerender.fcgi?tool=pubmed&pubmedid=16284645 Mér finnst reyndar ágætt að teygja eftir æfingar en fæ ekki samviskubit þó ég sleppi því.

Re: Er að selja fæðurbótapakka!

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Teygjur fyrir æfingar minnka ekki líkurnar á meiðslum heldur auka þær.

Re: Allskyns spurningar

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég nota ekki próteinduft, sé enga þörf á því. Hef reyndar aldrei einu sinni smakkað svoleiðis. Ég er búinn að bæta á mig meira en 15 kílóum af vöðvum á rúmum 2 árum og var þó enginn væskill fyrir, þannig að mjólkin ein er greinilega alveg nóg.

Re: Mót á akureyri?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Sæll nafni. Hvor Helginn ert þú? Gott framtak hjá þér að taka þátt. Mörgum finnst skrítið hjá kalli á mínum aldri að vera að vesenast í þessu, verandi alger byrjandi, en engum þætti skrítið að keppa ef ég væri í golfi, hlaupum eða helgarfótbolta, eða hvað?

Re: Mót á akureyri?

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Blessaður drífðu þig bara og vertu ekki að spá í hvað aðrir hafa tekið. Það skiptir engu máli.

Re: Íþróttadrykkir

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Nei, orkugosdrykkirnar eru ekkert fyrir íþróttamenn. Bara kók með enn meira koffíni en venjulegt. Allt í lagi til að halda sér vakandi í prófunum og svona, en ekkert til að venja sig á. Yfirleitt er best að drekka vatn á æfingum . Hins er sjálfsagt á 2-3 tíma æfingum er að drekka slíka drykki(-ade), einkum fyrir þá sem eru að reyna að massa sig upp og hafa því engar áhyggjur af hitaeiningunum.

Re: Íþróttadrykkir

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Eru magic og orkan dökkir? Ég hef ekki smakkað þá og ekki séð þá nema í umbúðunum sem eru ógegnsæjar. Jæja, allavega. Ég þekki nú ekki mikið til þessara drykkja, en að því er ég best veit eru magic og orkan í rauninni bara kók. Þ.e. sykur, kolsýra, vatn, fosfórsýra og koffín auk bragðefna. Gatorade og powerade hins vegar eru goslausir (held ég) og koffínlausir. Þeir innihalda að mestu sykur (þrúgusykur) og sölt og er ætlað að endurnýja sölt og slíkt sem tapast við langvarandi áreynslu og...

Re: Ofreynsla?

í Heilsa fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Kannski ekki alveg 90%. Hitt er annað að ef maður borðar ekki nógu mikið er 100% öruggt að vöðvarnir stækka ekki. Líkaminn eyðir ekki orku í vöðvauppbyggingu af hann á ekki afgang. Svo einfalt er það nú.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok