Við fjölskyldan vorum að fá boð um að vera hjá mömmu minni og pabba á aðfangadagskvöld og mér heyrist hún ætla að hafa svínasteik(ekki reykt) eða fyllt lambalæri ummmmmmm,en svo koma þau til okkar á gamlárskvöld og þá bíst ég við að hafa kalkún og reyktan svínabóg,meðlæti verður hrærðar,bakaðar kartöflur,waldorf salat og gulrætur og belgbaunir(soðið) og svo rauðvínssósa með svínakjötinu en soðsósa með kalkúninum. í eftirrétt bæði á aðfangadag og gamlárskvöld er heimalagaður ís og fromas,vá...