Stekkjastaur kom í nótt Stekkjastaur kom í nótt og gaf mér í skóinn. Hann gaf mér
Harry Potter límmiða, skrýtin tilviljun þar sem ég er akkúrat
nýbyrjaður að lesa fyrstu Harry Potter bókina ;)

“Sá fyrsti heitir Stekkjastaur og hér áður fyrr reyndi hann
oft að sjúga ærnar í fjárhúsunum hjá bændum.”

Á erlendum vefsíðum er Stekkjastaur þekktur fyrir að toga í skottið eða halann á dýrum. Hann hreyfir sig eins og staur og er mjög feiminn.

Hvað fenguð þið í skóinn frá Stekkjastaur?