Besti leikur ever.. eða eitthvað en mér tókst EKKI að klára hann, ég á ekki N64 svo ég þurfti að fá hann af netinu og svo eyðilagðist tölvan mín og þurfti ég að kaupa nýja, vitið þið hvert ég var kominn? ég átti eftir að hlaupa niður úr kastalanum og berjast þar við Ganon í annað skiptið EN ég komst aldrei niður, féll alltaf á tíma, reyndi 50+ sinnum en náði því aldrei, samt er ég ekkert slappur í svona leikjum, var innan við mánuð að komast þangað. Kannski er ég að gera eitthvað vitlaust...