Ég veit ekki alveg hvert á að senda þetta.

Ég verð að spyrja að einu, það er í sambandi við Zelda 64, ég downlódaði þessum klassaleik á netinu (25mb) og hef spilað hann alveg í tætlur, en núna er ég fastur, ég er búinn að drepa Ganon og þá byrjar kastalinn að hrynja og ég þarf að komast niður eins fljótt og hægt er en ég næ því aldrei, Zelda getur gengið í gegnum allar dyr en ekki ég, þarf maður virkilega að stökkva niður eða fara inn og út til þess að komast í gegnum hverja hurð, það er glatað og svo þarf maður að drepa nokkra skeletona á leiðinni, fyrst hélt ég að þetta kæmi bara með æfingunni eins og allt annað en núna trúi ég því ekki lengur td þó ég hlaupi niður alveg hindrunarlaus og drepi skeletonana á no time þá munar það einfaldlega of miklu svo að ég komist alla leið, ég þyrfti alveg 20% meiri tíma.

Er einhver búinn að vinna þennan leik, ég er búinn að skoða fullt af walkthroughs á netinu en engin af þeim segir meira en "fallow Zelda and then fight Ganon again! Kannski vantar eitthvað í þessa útgáfu mína eihvern run möguleika eða eitthvað.

Hjálp ef þið getið.