Jæja ætli ég verði ekki að reyna vera kurteis ef ég vil eiga einhvern sjens á að ná í gegn.
Mér finnst rosalega margar grúppur vera ofmetnar í dag sérstaklega hér á huga og ég er að hugsa um hverjar ykkur þykir hvað mest ofmetnar, ég elska hardcore og mér finnst það vera besta tónlist í heiminum og mér finnst allt þetta Nirvana, Pearl jam, Smashing pumpkins dót hræðilega ofmetið poppdrasl (sorry en þetta finnst mér) en hvað finnst ykkur?
Ekki vera að því að nefna Slayer til að hefna ykkur á mér því það breytir engu þeir eru konungar alls og í alveg sér klassa sem enginn getur látið sér dreyma um að ná.