Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

happye
happye Notandi frá fornöld Karlmaður
314 stig
We're chained to the world and we all gotta pull!

Re: Hreyfimyndagerð

í Kvikmyndagerð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
ég gerði einu sinni klippimynd í svona monty python stíl, notaði blaðaúrklippur og krappý teikningar, en það sem gerði aðalsjarmann var að ég tók hana á súper8 filmu. það var svolítið magnað. hef samt ekki séð hana í mörg ár. er hjá vini mínum sem á sýningavél…

Re: Leiðindarsenan...

í Kvikmyndagerð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
þetta hljómar eins og mjög þekkt fyrirbæri í ritlistarheiminum sem kallast 3/4 syndrómið, þ.e., þegar maður er búinn með 3/4 af handritinu/sögunni/leikritinu eða hverju sem er stoppar maður. því lengra sem verkið er, því erfiðara er að sigrast á þessu. það hafa verið skrifaðar heilu bækurnar um hvernig eigi að sigrast á ritstíflum, en ég held að besta ráðið sé einfaldlega: skrifaðu! ekki gefast upp! skrifaðu, sama hversu leiðinlegt þér finnst það, og sama hversu ósáttur þú ert við...

Re: Hvaða myndasögur?

í Myndasögur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Eitt orð: “Sandman” … Að mínu mati ekki bara besta teiknimyndasaga allra tíma, heldur einfaldlega eitt af topp tíu bókmenntaverkum allra tíma. Mæli hiklaust með þessari seríu.<br><br>—— We are healthy, only to the extent that our ideas are humane. -Kurt Vonnegut

Re: Billie Holiday

í Jazz og blús fyrir 22 árum, 10 mánuðum
ég heyrði einhversstaðar haft eftir billie holiday að þegar hún syngi reyndi hún að líkja eftir lúðri… það tókst oft ágætlega… ;)

Re: Stór ÍSLENSKUR bloggvefur

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
já, ég verð nú líka að segja að mér finnst svolítill barnaskapur að vera að gagnrýna vefsíðu hjá byrjendum, sem eru þaraðauki kornungir… en hvað varðar blogg, þá er það bara ein tegund upplýsingaveitu. blogg getur verið allt frá einfaldri fréttasíðu (einstaklinga, félaga, fyrirtækja…) yfir í persónulega dagbók, yfir í einfaldar hugleiðingar yfir í bókmenntir. blogg getur (eins og allt) verið gott og slæmt og allt þar á milli. en ég er sammála því að það vanti íslenska bloggvél. ekki alltaf...

Re: Rok

í Smásögur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
eh… það væri gaman, en ef ég ætla að fá hana birta einhversstaðar gætu það verið mistök…

Re: Vantar hjálp!

í Músík almennt fyrir 22 árum, 10 mánuðum
10 laga demó er tilbúið. þeir sem hafa áhuga, endilega hafið samband! hljómsveitin heitir misery loves co. og spilar hefðbundna tilraunatónlist, blues, folk, kabarett, gospel, jazzy dót og bara hvað sem okkur dettur í hug… svolítill tom waits fílingur… ef þið hafið áhuga, og eigið tóman geisladisk, hafið samband: miserylovesco@visir.is … endilega… kk

Re: Jazz og Blús!

í Jazz og blús fyrir 22 árum, 10 mánuðum
minn maður paul mccartney átti oft sína blússpretti með bítlunum… einn af skemmtilegustu hvítu blússöngvurum sem ég hef heyrt í (því þótt clapton hafi verið góður í að spila blús var hann aldrei sérstakur söngvari) að ógleymdum meistara blúsrokksöngsins: robert plant! og auðvitað allir hinir… blús er snilld! hefur einhver hlustað á the blues white album? geðveik plata…

Re: Vantar hjálp!

í Músík almennt fyrir 22 árum, 10 mánuðum
takk kærlega lög verða vonandi komin á netið fljótlega, en þeir sem hafa áhuga geta líka fengið disk (ef þið leggið hann til, auðvitað, fátækur námsmaður…)… ekkert mál sendu mér tölvupóst, bremsufar, á theramite@hotmail.com … tíu laga demó… yours for the grabbing! endilega, ef einhver hefur áhuga, bara senda mér tölvupóst, og við ræðum þetta!

Re: Rok

í Smásögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Takk fyrir takk fyrir takk fyrir… Annars er ég búinn að gera miklu betri útgáfu af þessari sögu, sem ég ætla að reyna að fá birta einhversstaðar… Wish me luck!

Re: Frelsisstríð ???

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
alveg rétt hjá þér, ég misskildi það sem þú varst að segja… einu vil ég bæta við, það sagði einhver að bandaríkin myndu ráða við Kína… Kínverjar eru 1.25 milljarðar… ALLIR krakkar fá herþjálfun frá barnaskólaaldri… Það er skólskylda í Kína… Getiði ímyndað ykkur hvað þeir geta kallað marga til ef til átaka kæmi… Þar fyrir utan eiga þeir töluvert fullkominn vopnakost (öfugt við t.d. Írak) svo ég held að enginn myndi nokkurn tíma þora að ráðast gegn Kína…

Re: Frelsisstríð ???

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
hér er fólk að nota fullt af stórum orðum og fullt af ljótum orðum líka… ég held að allir geti verið sammála um það að þetta stríð er slæmt, en ég nenni ekki að segja meira um það.. hinsvegar! abesynth, þú sagðir: “Það er algengur misskilningur að alþýðulýðveldið Kína sé kommúnískt ríki en svo hefur ekki verið í marga áratugi, Kína er ríki á leið til sífellt meiri opnunar og meira efnahagslegs frelsis…” Hefur þú komið til Kína? Ég hef komið þangað, og Kína er víst kommúnískt ríki. Mjög...

Re: Borgaralegar fermingar???

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
þeir sem ferma sig í kirkju án þess að samþykkja kristilega trúarsetningu eru einu hræsnararnir hérna… þeir sem segjast trúa á guð en eru að ljúga FARA TIL HELVÍTIS!!! sjálfur fermdist ég borgaralega vegna hvatningar frá fjölskyldunni eftir að ég ákvað að ég vildi ekki ferma mig í kirkju af því að ég trúði ekki á guð. ég hafði ekki hugmynd um hvað borgaraleg ferming var… ég var ekki skírður og er þakklátur fyrir það. en ég skil ekki þessa umræðu, því það hlýtur bara að vera einkamál fólks...

Re: Ísrael 1: Mordechai Vanunu

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
smá spurning til mér vitrari manna: veit einhver hvað ísraelsmenn eru búnir að drepa marga palestínumenn síðan 1967? stend í smá deilu á amerískri síðu og er að reyna að sýna þeim fram á tvískinnungshátt bandarískra stjórnvalda… einhver með tölur???

Re: Staffið á bókas Kópavogs...

í Bækur fyrir 23 árum, 1 mánuði
já… ég vinn á bókasafni kópavogs (ekki aðalsafninu reyndar), og ég veit ekki til þess að hafa nokkurn tíma verið dónalegur við viðskiptavini (nema einu sinni einhverja krakkaorma sem voru með þvílík læti og neituðu að hætta því… en það er undantekning), en ég veit auðvitað ekki hvernig þetta er uppi á aðalsafni. mér finnst leiðinlegt að heyra að það sé leiðinlegt starfsfólk þar, þótt það hafi verið ágætt í þessi skipti sem ég hef hitt þau. reyndar fer rosalega mikið eftir því hvernig fólk...

Re: Rok

í Smásögur fyrir 23 árum, 2 mánuðum
þakka hlýleg orð í minn garð… :)

Re: meðvitundarleysi

í Ljóð fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Tom Waits er bestur… yfirleitt skrifa ég alltaf í rykk og endurskrifa svo… núna ákvað ég að prófa hitt…. er ekki enn búinn að lesa það aftur… Takk fyrir hlýleg orð!

Re: Hundurinn minn, Sesar

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þetta er draumahundurinn, held ég.. Gáfaður, sætur og umfram allt skemmtilegur. Til hamingju!!!

Re: Smá til umhugsunar

í Hundar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Af hverju eru allir svona æstir? Getum við ekki bara öll verið vinir? Einhvern vegin finnst mér að við ættum öll að geta rætt um hlutina á rólegan og yfirvegaðan hátt, þar sem við hljótum jú öll að bera hag dýranna fyrst og fremst fyrir brjósti, eða hvað? Ég er ekkert að segja að ég hafi neitt á móti frjálsum skoðanaskiptum, en mér finnst alveg rosalega margir hérna taka allt alveg rosalega persónulega og æsa sig hrikalega mikið. Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir!

Re: Um hundana frá hinum og þessum

í Hundar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ein góð tilvitnun í viðbót (eftir minni, kannski ekki alveg orðrétt): “Here's the proof that dogs are better than cats: There are no CATS working down at ground zero (World Trade Center rústirnar), right? There are no cats, no gerbils, no hamsters, no parrakeets… There are only dogs working down at Ground Zero. Dogs rule!” -Denis Leary

Poetry.com er bara rugl

í Ljóð fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég hef tvisvar fengið svona kjaftæði, og svaraði því í hvorugt skiptið. Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað voða sniðugt, en svo sá ég að helvítis bókin átti að kosta einhvern 6000 kall! Og ég fékk ekki einu sinni frítt eintak! Svo ég henti þessu bara. Svo þetta poet of the year (ég var tilnefndur bæði 2001 og 2002), það er líka bara kjaftæði! Þarf að borga einhvern 20 þús. kall bara fyrir aðgöngumiða, fyrir utan flugfar og annað! Algert helvítis kjaftæði. Vinur minn fékk líka sent svona...

Re: Kína

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Já börnin góð, ég er kominn aftur heim frá Kína. Ég get glatt sum ykkar og hryggt önnur með því að það var ekki fræðilegur möguleiki að fá neitt meira framandi en rækjur að borða þarna. Allt saman samt framúrskarandi gott á bragðið, að sjálfsögðu. En ég spurði út í þetta, og Kínverjar borða víst næstum því hvað sem er, en fyrir túrista er næstum vonlaust að reyna að fá sér kött eða eitthvað… Sem var allt í lagi mín vegna, ég var bara forvitinn… Jæja, hér er ég, hef aldrei borðað neitt sem...

Re: Kína

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég gæti alveg hugsað mér að borða ketti og rottur, mér er illa við þau dýr. Ég hef borðað folaldakjöt, og það er viðbjóður (ældi lungum og lifur eftirá, mjög þungt í maga)… En ég gæti ekki borðað hund, af því að ég elska hunda… Alveg eins gæti ég alls ekki hugsað mér að borða kanínukjöt, af því að ég á kanínur. En rottukjöt langar mig mikið að smakka. Hef heyrt að það sé mjög gott… Leitaði lengi að rottuborgara stað í Amsterdam þegar ég var þar (þangað til að ég skrapp inn á “coffe-shop”, og...

Re: Gáfnamenni - Hjálpið mér!

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Já, ég er að spá í að gera það bara við tækifæri… Má maður alveg vera einn og yfirgefinn (án hunds til að passa sig….)? Þakka ykkur annars mjög mikið fyrir góð ráð (í sambandi við skammlífi, þá gerir maður bara það besta úr þeim stutta tíma sem maður hefur… Annars segja Dane eigendur að þau vilji frekar átta ár með Dana en tuttugu með einhverri annarri tegund, svo ég hef ekki svo miklar áhyggjur af því :) Takktakk! E

Re: Vatns-agi á hundinn svínvirkar !

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Já, ég nota einmitt svona vatnsdæmi á kanínuna mína stundum og meira að segja páfagaukinn minn. Þetta virkar á bara öll dýr held ég (kannski ekki fiska og lindýr og eitthvað, en þið vitið… öll dýr með heitt blóð…), af því að þetta er svo ruglingslegt og óþægilegt…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok