Hæhæ…
Ég er í hljómsveit. Við spilum einhverskonar jazz-blues-þjóðlaga-tomwaitslegan bræðing, mestmegnis órafmagnað. Við byrjuðum bara í einhverju flippi, en hefur síðan verið tjáð að við séum alls ekki sem verstir.
Nú er frúin á leið til London, og það er verið að pressa á okkur að senda hana með demó til að dreifa þar til útgefenda og annarra. Demóið er til og allt í fína með það. Vandamálið er að ég hef ekki hugmynd um hvert ég gæti mögulega látið hana fara með þetta.
Veit einhver um einhverja staði, eða um einhverja síðu með lista yfir útgáfur og/eða pöbba og útvarpsstöðvar sem taka við efni?
Takk takk…
happye
We're chained to the world and we all gotta pull!