Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
happye
happye Notandi frá fornöld Karlmaður
314 stig
We're chained to the world and we all gotta pull!
Alaskan Malamute (3 álit)
í Hundar fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ekki vill svo heppilega til að einhver hérna sé fróður um Malamute? Mig langar svakalega í einn slíkan. Veit einhver hvort það er verið að rækta þá hérna, eða myndi maður þurfa að flytja hann inn. Ég veit að það eru nokkrir hérna, en hef ekki fundið nægar upplýsingar, og hef ekki enn fengið svar við tölvupósti sem ég sendi á tengilið tegundarinnar hjá hrfí. Er einhver sérfræðingur í þessum gullfallegu hundum hérna? Kærar þakkir.
Bleikt (7 álit)
í Smásögur fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Þetta er stílæfing sem ég gerði fyrir nokkrum árum. Datt í hug að deila þessu með ykkur, svona til gamans. Leyfðu mér að segja þér sögu. Þú manst þetta ekki, af því að þú manst ekki neitt. En þetta gerðist. Þú manst það ekki, en þú áttir einu sinni allt. Einu sinni áttirðu hús og bíl. Þú áttir konu, og þú áttir barn. En svo misstirðu okkur. Og það var allt þér að kenna. Þú varst í góðri vinnu. Konan þín, konan sem lofaði að standa með þér í gegnum súrt og sætt, sem lofaði að elska þig alla...
Hvað svo? (3 álit)
í Ljóð fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Og hvað svo? Á maður svo bara að leggjast á bakið og bíða eftir því að maður drepist? Dragnast í vinnuna á hverjum morgni. Horfa á sjónvarpið þangað til manni fer að blæða úr augunum. Eignast þrjú börn, hund og heimabíó, tvo bíla og hús í Skerjafirði. Er það allt og sumt? Er ekkert sem bíður okkar nema vinna, svefn og langþráð líkkista? Hvað er hamingja? Þegar við höfum öðlast allt öryggið sem við þráum. Þegar við erum búin að finna þann eina rétta. Þegar við erum búin að finna þessa...
Espresso Films (0 álit)
í Kvikmyndagerð fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Alice (0 álit)
í Músík almennt fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Alice
Alice (0 álit)
í Rokk fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Alice
Black Rider (0 álit)
í Jazz og blús fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Mennirnir á bak við Black Rider: Tom Waits, tónskáld, Robert Wilson, leikstjóri og myndlistarmaður og William Burroughs, eiturlyfjasjúklingur og rithöfundur með meiru.
Black Rider (0 álit)
í Músík almennt fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Tom Waits, höfundur tónlistar, Robert Wilson, leikstjóri, og Willam Burroughs, höfundur texta í Black Ride
misery loves company (0 álit)
í Músík almennt fyrir 19 árum, 8 mánuðum
misery loves company
misery loves company (0 álit)
í Jazz og blús fyrir 19 árum, 8 mánuðum
misery loves company
Hundar (0 álit)
í Hundar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég vissi að kanínur og hundar gætu verið vinir!!!
Hvað svo? (9 álit)
í Ljóð fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þetta er ljóð í vinnslu, vantar álit… Og hvað svo? Á maður svo bara að leggjast á bakið og bíða eftir því að maður drepist? Dragnast í vinnuna á hverjum morgni. Horfa á sjónvarpið þangað til manni fer að blæða úr augunum. Eignast þrjú börn, hund og heimabíó, tvo bíla og hús í Skerjafirði. Er það allt og sumt? Er ekkert sem bíður okkar nema vinna, svefn og langþráð líkkista? Hvað er hamingja? Þegar við höfum öðlast allt öryggið sem við þráum. Þegar við erum búin að finna þann eina rétta....
Uppistand á Port City Java (1 álit)
í Húmor fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Frægir Stand-up Grínistar? (2 álit)
í Húmor fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Af hverju er ekki meira um að frægir erlendir grínistar komi á klakann? Ég man bara eftir þremur (ef telja á Pablo Fransisco með)… Fransisco, Eddie Izzard og Jerry Seinfeld. Bara einn af þessum er virkilega góður að mínu mati (Izzard að sjálfsögðu). Hvað er málið? Það er mýgrútur af frægum erlendum hljómsveitum og tónlistarmönnum að koma til íslands í sumar… Af hverju er ekki meira um Stand-up grínista? Það er ekki eins og Íslendingar séu ekki mikið fyrir Stand-up… Vinsælustu leiksýningarnar...
Tónleikar á PALACE (Hafnarstræti) til styrktar Espresso Kvikmyndagerð (3 álit)
í Kvikmyndagerð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Laugardaginn 12. Júní ætlum við í Espresso kvikmyndagerð að halda stóra tónleika til styrktar kvikmyndinni okkar, Kvöldbæn, sem við ætlum að gera í sumar. Þetta er kvikmynd í fullri lengd, og takmarkið er að geta sannað fyrir Íslendingum að það sé hægt að búa til alvöru bíómynd án þess að vera með kvikmyndasjóð og ZikZak film á bak við sig. Tónleikarnir fara fram á De Palace. Dagskráin hefst kl. 20:00 og er alls ekki af verri endanum. Fyrst verður stand-up sýning, þar sem fjórir grínistar...
Tónleikar til styrktar kvikmyndar... (7 álit)
í Kvikmyndagerð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Laugardaginn 12. Júní ætlum við í Espresso kvikmyndagerð að halda stóra tónleika til styrktar kvikmyndinni okkar, Kvöldbæn, sem við ætlum að gera í sumar. Þetta er kvikmynd í fullri lengd, og takmarkið er að geta sannað fyrir Íslendingum að það sé hægt að búa til alvöru bíómynd án þess að vera með kvikmyndasjóð og ZikZak film á bak við sig. Tónleikarnir fara fram á gamla Vegas. Dagskráin hefst kl. 20:00 og er alls ekki af verri endanum. Fyrst verður stand-up sýning, þar sem fjórir grínistar...
"Innan gæsalappa" (5 álit)
í Smásögur fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þetta er stílæfing sem ég gerði fyrir Frásagnartækni uppi í háskóla í vetur. Stikkorðið fyrir æfinguna var “Gæslappir”… „Þegar ég vakna stendur slanga upp úr hálsinum á mér. Tvö lítil rör liggja sitt úr hvorri nösinni. Ég þarf að gubba. Ég veit hvað ég þarf að segja þeim. Fór yfir það margoft í höfðinu áður en ég bar pilluglasið skjálfhentur að munninum. Ég var með hausverk. (Innan gæsalappa). Hann fór ekki, svo ég gleypti fleiri og fleiri verkjatöflur þangað til ég sofnaði. Óvart. (Innan...
Vantar fólk í crew!!! (1 álit)
í Kvikmyndagerð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Eins og oft hefur verið kvartað yfir hérna á áhugamálinu er ekki hægt að stóla á fólk. Amk ekki ef það skortir sömu geðveilu og margir hérna deila með mér. Þess vegna erum við í Espresso núna í vandræðum, þar sem við erum ekki með almennilegt crew, og við erum búnir að missa manneskjuna með kameruna! Þess vegna langaði mig til að auglýsa eftir áhugasömum sem væru til í að vera með okkur í að taka magnaða mynd í sumar. Okkur vantar aðallega hljóðmann (eða öllu heldur boom operator, þarf ekki...
Alice live (0 álit)
í Rokk fyrir 20 árum
Ég sendi þetta inn sem atburð, en þar sem fyrirvarinn er mjög stuttur, og ekki er víst að hann verði samþykktur í tæka tíð, ákvað ég að senda þetta sem kork líka: Við í Misery loves company höfum alltaf öðru hverju verið að taka heilar plötur eftir Tom Waits, auk þess sem við spilum jafnan slatta af verkum meistarans fyrir utan það. En nú er Tom Waits kafla hljómsveitarinnar senn að ljúka, þar sem við ætlum að einbeita okkur að okkar eigin efni, og í tilefni af því höfum við ákveðið að efna...
Alice (0 álit)
í Jazz og blús fyrir 20 árum
Ég sendi þetta inn sem atburð, en þar sem fyrirvarinn er mjög stuttur, og ekki er víst að hann verði samþykktur í tæka tíð, ákvað ég að senda þetta sem kork líka: Við í Misery loves company höfum alltaf öðru hverju verið að taka heilar plötur eftir Tom Waits, auk þess sem við spilum jafnan slatta af verkum meistarans fyrir utan það. En nú er Tom Waits kafla hljómsveitarinnar senn að ljúka, þar sem við ætlum að einbeita okkur að okkar eigin efni, og í tilefni af því höfum við ákveðið að efna...
Útlit (34 álit)
í Kvikmyndagerð fyrir 20 árum
Ég er yfirleitt lítið fyrir að tala mikið um hluti sem ég hef litla reynslu af sjálfur, en ákvað nú samt að senda inn litla grein um hluti sem mér finnst lítið hafa verið rætt um hérna, en eiga þó fullt erindi til fólks eins og mín og án efa margra annarra Hugara, sem er að stíga fyrstu skrefin í kvikmyndagerð, og er kannski ekki með allt á hreinu. Málið er það að maður er oft að sjá stuttmyndir (og jafnvel myndir í fullri lengd… Reykjavík Guesthouse anyone?) sem eru kannski byggðar á góðri...
Galant '87 til sölu, 10.000 kall (3 álit)
í Bílar fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Fínn bíll, kraftmikill, en þarf aðeins að vinna í. Blöndungurinn er skítugur, þarf að hreinsa hann vel. Bíllinn er ljótur að utan. Önnur hurðin er beygluð og brettin að framan eru ryðguð. Fyrir utan þetta er bíllinn í fínu standi, eftir því sem ég best veit. Fer á 10.000 kall. eyvindur 868 9742
—— Veftímaritið Ónan http://www.onanis.tk eyvindur@onanis.tk misery loves company ókey, við hljómum...
Íslenskir bootleggar? (3 álit)
í Gullöldin fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Heil og sæl! Ég er að leita að upptökum með stórum böndum sem hafa spilað á íslandi (þá upptökum FRÁ Íslandi). Helst vantar mig Led Zeppelin tónleikana 1970. Ég hef ekki hugmynd um hvort þessi upptaka er yfir höfuð til eða ekki, en ef einhver veit eitthvað um þetta væri mjög vel þegið ef viðkomandi hefði samband við mig! ég er með bootleg síðu á http://www.tapetrader.com/eyvindur og emailið mitt er <a...
Okkur vantar aðstoð... (9 álit)
í Jazz og blús fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Heil og sæl, ágæta jazz- og blúsáhugafólk… Eins og þið ættuð að vita (miðað við hvað ég er óþolandi með plögg hérna) er ég meðlimur í blús bandinu (með jazzívafi þó) misery loves company. Þannig er að næsta sunnudag ætlum við að halda tónleika á Sirkus, og verður þetta í fyrsta sinn sem við spilum nánast bara frumsamið efni. Sem er svo sem ekki í frásögu færandi, nema fyrir þær sakir að við erum að velta því fyrir okkur að taka tónleikana upp og búa til rafræna tónleikaplötu á netinu. Þetta...
Batterí ónýtt á augabragði! Hjáááálp!!!!! (4 álit)
í Apple fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Ókey, ég veit ekki hvað í andskotanum gerðist, en batteríið mitt er ónýtt. Þannig er að ég er með nokkurra mánaða gamla ibook tölvu, sem hefur virkað perfect hingað til. Svo tók ég batteríið úr í smá stund, setti svo strax í aftur, og nú er eins og það sé ekki til. Tölvan finnur það ekki. Ég prófaði að setja annað batterí í, og það virkaði, þannig að þetta er pottþétt batteríið. Ég prófaði að hafa tölvuna í sambandi í heillangan tíma, en það hjálpaði ekkert til. Batteríið var hlaðið þegar ég...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok